Fotbolti.net
30.03.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Sú vitneskja gerir mann að sterkari einstakling"

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég hef í sjálfu sér ekki sterka skoðun á þessari spá enda er hún og aðrar spár fyrir mót oft byggðar meira á tilfinningu heldur en endilega djúpri þekkingu á stöðu liðanna," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.

KR-ingum er spáð fimmta sæti í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni.
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 5. sæti
TENGT EFNI

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 5. sæti

Mikill stígandi í hópnum
Það hefur gengið vel hjá KR á undirbúningstímabilinu þar sem liðið komst meðal annars í úrslitaleik Lengjubikarsins.

„Veturinn hefur gengið vel. Það hefur verið mikill stígandi í hópnum undanfarna mánuði og þá kannski sérstaklega andlega hlutanum," segir Óskar.

„Við höfum átt leiki þar sem við höfum verið hreinlega lélegir en fleiri leiki þar sem við höfum verið sáttir við frammistöðuna og framþróunina á liðinu."

KR hefur ekki bætt mörgum leikmönnum við hóp sinn í vetur. Það er þó stórt að Arnór Ingvi Traustason er mættur í Vesturbæinn. Óskar er mjög sáttur við hópinn sinn.

„Hópurinn er ekki stór en ég er mjög sáttur með hann. Lykilatriði fyrir okkur verður að halda mönnum heilum ólíkt því sem raunin varð í fyrra. Ég geri ekki ráð fyrir því að það verði fleiri breytingar á hópnum."

Gríðarlegur lærdómur
Óskar segist horfa til baka á síðasta tímabil, þar sem KR féll næstum því, sem gríðarlegan lærdóm.

„Ég horfi til baka á síðasta tímabil sem gríðarlegan lærdóm, bæði fyrir mig og leikmennina. Þú kemst að mörgum hlutum um sjálfan þig í mótlæti og sú vitneskja gerir mann að sterkari einstakling þegar til lengri tíma er litið," segir Óskar.

„Markmiðið er að ná meira andlegum stöðugleika í liðið og verða betri að fylgja góðum ávönum á hverjum degi."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Stuðningsmenn KR sýndu það í fyrra að þeir eru langbestu stuðningsmenn á Íslandi. Við þurfum á þeim að halda til að gera Meistaravelli að alvöru vígi og KR að alvöru afli í Bestu deildinni á nýjan leik. Sjáumst á vellinum," sagði Óskar.
KR fagnar marki í vetur.

KR fagnar marki í vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar á hliðarlínunni á síðasta tímabili.

Óskar á hliðarlínunni á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Eva Rós Ólafsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.