Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
   fös 27. mars 2026 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Við ætlum að reyna að verða Íslandsmeistarar"
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals.
Mynd: Valur
Valur fagnar marki á síðasta tímabili.
Valur fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ari Leifsson.
Ari Leifsson.
Mynd: Kolding
Hemmi á hliðarlínunni í vetur.
Hemmi á hliðarlínunni í vetur.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
„Spáin er bara skemmtileg," sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, við Fótbolta.net þegar hann var spurður út í spánna fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Valsmönnum er spáð sjötta sæti deildarinnar.

„Liðin eru búin að vera að styrkja sig og styrkt sig vel. Maður sýnir þessu alveg skilning og allt það. Ef það er tekið mið af vetrinum og við kannski ekki búnir að bæta mikið við okkur, þá held ég að þetta sé eftir því bara."

Undirbúningstímabilið hefur kannski ekki farið alveg að óskum fyrir Valsmenn og hefur verið nokkuð um meiðsli.

„Maður hefur bara getað notað fáa af þeim leikmönnum sem koma til með að bera hitann og þungann á tímabilinu, verða í lykilstöðum. Það er ekki eitthvað sem ég tekið inn í mengið," sagði Hemmi um úrslit á undirbúningstímabilinu.

Það hafa verið viðræður
Félagið er að reyna að styrkja leikmannahópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar.

„Við erum að reyna að styrkja okkur. Við vonum að það gangi eitthvað eftir af því. Auðvitað eru menn að koma til baka og hafa verið að tínast inn síðasta mánuðinn, síðustu vikur. Þetta er að taka á sig fína mynd núna," sagði Hemmi.

Félagið er með leikmenn til skoðunar, þar á meðal Hollending sem spilaði með liðinu í æfingaleik á dögunum.

„Við erum að skoða hann út þessa viku og svo verður tekin ákvörðun í kjölfarið."

Varnarmaðurinn Ari Leifsson er á óskalistanum á Hlíðarenda.

„Það hafa verið viðræður allavega. Hann er samningsbundinn úti, það veltur svolítið á því hvað félagið út segir. Annars erum við svakalegir áhugasamir. Við erum að reyna að fá Ara og erum í viðræðum," sagði Hemmi.

Ætla að verða Íslandsmeistarar
Hemmi var þá spurður hvort það væri ekki mikilvægt að byrja tímabilið vel.

„Ég held að það séu allir að hugsa það sama, það er alltaf mikilvægt að byrja vel. Svo veit maður líka að maður verður að vera raunsær með það að við erum ekki að fara að toppa í byrjun. Við þurfum að komast í leikform og slípa okkur saman. En við verðum klárir í fyrsta leik, það er engin spurning," sagði Hemmi.

Hvað er markmiðið?

„Við ætlum að reyna að verða Íslandsmeistarar, það er markmiðið."

„Ég hlakka til að sjá alla á vellinum og lofa frábærri skemmtun á Hlíðarenda í allt sumar, frábærri skemmtun," voru lokaorð Hemma til stuðningsmanna Vals.
Slapp
Athugasemdir
banner