30.03.26
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 5. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. KR, 90 stig
6. Valur, 88 stig
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig
Um liðið: Það mátti ekki miklu muna að KR hefði fallið úr Bestu deildinni síðasta sumar. Það réðist allt í lokaleiknum gegn Vestra á Ísafirði þar sem KR-ingar sýndu sínar bestu hliðar og héldu sér uppi í deild þeirra bestu. Tímabilið byrjaði ágætlega hjá KR, þeir brenndu skipin og þeir spiluðu virkilega skemmtilegan fótbolta en þegar leið á tímabilið þá fór stemningin aðeins að súrna og Vesturbæjarstórveldið var ekki langt frá Lengjudeildinni þegar talið var upp úr pokanum góða. Í Vesturbænum ríkir samt sem áður áfram mikil trú á verkefninu sem Óskar Hrafn Þorvaldsson leiðir áfram. Það hafa orðið litlar breytingar á liðinu milli tímabila en samt sem áður hafa sérfræðingar líka mikla trú á því að KR geri betur í sumar. KR hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu og það verður fróðlegt að sjá hvort það takist betur hjá þessu athyglisverða liði í sumar.
Þjálfarinn: Það eru líklega ekki margir þjálfarar sem hefðu fengið sama traust og Óskar Hrafn Þorvaldsson fékk hjá KR á síðasta tímabili. Liðið var í bullandi vandræðum lengi vel en það var aldrei umræða um það að Óskar myndi missa starfið. Hann þekkir félagið inn og út, er uppalinn í Vesturbænum. Hann þjálfaði yngri flokka félagsins fyrir nokkrum árum og tók svo við sem aðalþjálfari meistaraflokks Gróttu þar sem hann gerði ótrúlega hluti. Hann kom Gróttu alla leið upp í Bestu deildina og stýrði Breiðabliki svo til Íslandsmeistaratitils ásamt því að koma þeim í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Hann stoppaði stutt sem þjálfari Haugesund í Noregi og kom aftur heim. Óskar tók fyrst við sem yfirmaður fótboltamála hjá KR og gerðist svo þjálfari liðsins samhliða því. Óskar er án efa einn færasti þjálfari landsins og hann er með lyklana í Vesturbænum. Hann er jafnframt einn skemmtilegasti viðmælandinn í deildinni.
Styrkleikar: KR er með einn besta þjálfara deildarinnar. Hann er með reynslu af því að byggja upp lið og hefur honum vegnað vel í því í gegnum tíðina. Þó síðasta tímabil hafi ekki farið eins og óskað var eftir, þá er hann áfram einn besti þjálfari deildarinnar. KR var eitt besta sóknarlið deildarinnar í fyrra og þeir eru með frábæra leikmenn sóknarlega sem geta tekið yfir leiki og þá helst Aron Sigurðarson sem er einn allra besti leikmaður deildarinnar. Það eru mikil gæði í liðinu í bland við gríðarlega efnilega leikmenn sem eru að koma upp. Lið KR hefur leikið vel á undirbúningstímabilinu og getur tekur það með sér inn í mótið. Í KR er rík saga og frábær stuðningsmannakjarni sem getur hjálpað liðinu mikið að komast aftur á þann stað sem félagið á að vera á. Þó síðasta tímabil hafi verið erfitt þá má reikna með því að þeir hafi lært mikið af því.

KR fagnar marki á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lykilmenn: Arnór Ingvi Traustason og Aron Sigurðarson
Arnór Ingvi er kominn heim eftir að hafa spilað lengi í atvinnumennsku og hann er leiðtogi sem KR þurfti inn á miðsvæðinu. Það er ekki langt síðan Arnór var að spila stórt hlutverk í landsliðinu og ef allt er eðlilegt, þá á hann að vera einn besti leikmaður Bestu deildarinnar. KR hefur ekki styrkt sig mikið en að fá Arnór inn er risastórt. Þeir sem hafa fylgst með Bestu deildinni síðustu ár vita svo nákvæmlega hversu góður Aron Sigurðarson er. Á köflum í fyrra bar hann KR-liðið á herðum sér. Stórkostlegur framarlega á vellinum og drífur Vesturbæjarstórveldið áfram með gæðum sínum.
Gaman að fylgjast með: Sigurður Breki Kárason
Þeir sem horfðu á leik KR og Val í fyrra, þeir gleyma því ekki þegar Sigurður Breki trítlaði inn á völlinn. Langminnsti leikmaður vallarins en hann gaf ekkert eftir og var frábær í leiknum. Hann hefur víst verið stórkostlegur á undirbúningstímabilinu og kemur til með að taka stórt hlutverk í KR-liðinu í sumar þrátt fyrir ungan aldur. Leikmaður sem á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Alexander Rafn Pálmason er einnig leikmaður sem vert er að fylgjast með þangað til hann fer út til Nordsjælland í Danmörku um mitt sumar.
Spurningarnar: Hversu mikið hafa menn lært af síðasta tímabili? Hver verður mest í markinu? Hversu mörgum mörkum mun Aron Sig koma að?

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Komnir:
Arnór Ingvi Traustason frá Svíþjóð
Hrafn Tómasson frá Þrótti (var á láni)
Fuseini Issah frá Gana
Fredrick Delali frá Gana
Farnir:
Júlíus Mar Júlíusson til Kristiansund
Matthias Præst til Danmerkur
Atli Sigurjónsson í Þór
Róbert Elís Hlynsson í ÍBV á láni
Atli Hrafn Andrason í HK
Óliver Dagur Thorlacius hættur (KV)
Óðinn Bjarkason í Aftureldingu (var á láni hjá ÍR)
Jón Arnar Sigurðsson í ÍR
Jakob Gunnar Sigurðsson seldur til Lyngby (var á la?i)
Sigurpáll Sören Ingólfsson í Ægi á láni


Arnór Ingvi er kominn heim úr atvinnumennsku.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
1. Arnar Freyr Ólafsson (m)
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Michael Akoto
5. Birgir Steinn Styrmisson
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Stefán Árni Geirsson
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
10. Guðmundur Andri Tryggvason
11. Aron Sigurðarson (f)
14. Alexander Rafn Pálmason
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
16. Matthias Præst Nielsen
17. Luke Conrad Morgan Rae
18. Óliver Dagur Thorlacius
19. Amin Cosic
20. Atli Hrafn Andrason
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
24. Kristófer Orri Pétursson
26. Hrafn Tómasson
27. Jón Ernir Ragnarsson
28. Hjalti Sigurðsson
29. Aron Þórður Albertsson
30. Sigurður Breki Kárason
33. Skarphéðinn Gauti Ingimarsson
45. Galdur Guðmundsson
77. Orri Hrafn Kjartansson
Fyrstu fimm leikir KR:
12. apríl, KR - Keflavík (Meistaravellir)
17. apríl, KR - Þór (Meistaravellir)
22. apríl, ÍBV - KR (Hásteinsvöllur)
26. apríl, KR - FH (Meistaravellir)
2. maí, Valur - KR (N1 völlurinn Hlíðarenda)
Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.

Aron Sigurðarson er stórkostlegur leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Breki er klárlega leikmaður sem vert er að fylgjast með.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Rafn Pálmason sömuleiðis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Gauti átti mjög gott tímabil í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Luke Rae er raketta á kantinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Freyr kemur til með að byrja mótið í markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Árni er orðinn aðstoðarþjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrafn Tómasson stóð sig vel á láni hjá Þrótti á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Michael Akoto kom sterkur inn í vörnina undir lok síðasta tímabils.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Galdur Guðmundsson kom til KR á miðju síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gerir KR á komandi keppnistímabili?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

