Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Stjarnan
Stjarnan
Mjólkurbikar karla
Samsungvöllurinn
6 gráður, 2 m/s
2 - 1
KR
KR
0 - 17' Eiður Gauti SæbjörnssonEmil Atlason 11'1 - 1Emil Atlason 44'2 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
+5
Stjarnan slær KR hér úr leik!
90. mín
Stjörnumaður liggur í teignum svo þetta fer eitthvað yfir uppgefinn uppbótartíma.
90. mín
+2
Aron Sigurðarson með skot úr aukaspyrnu beint í fangið á Árna.
90. mín
+1
Það er hiti í mönnum og Ívar þarf að skilja leikmenn að. KR á aukaspyrnu á fínum stað.
90. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 3 mínútur. Er Stjarnan að slá KR út hér?
90. mín
Dóri heldur KR á lífi
Ver frábærlega frá Bjarka Haukssyni.
88. mín
803
Áhorfendur í kvöld
Stjarnan
88. mín
Gult spjald

Jóhann Árni Gunnarsson

Stjarnan
88. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtDaníel Finns Matthíasson
86. mín
Luke Rae með arfaslaka skottilraun langt framhjá.
85. mín
SLÁIN!
Leikmaður Stjörnunnar skallar boltann í slána og yfir á eigin marki eftir hornspyrnu KR!
84. mín
Vítið sem Árni Snær varði frá Aroni í lok fyrri hálfleiks
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
82. mín
Átti KR að fá víti? Gummi Kristjáns sparkaði í Eið Gauta, það var sterk lykt af þessu.
80. mín
Bjarki Hauksson með skot en Halldór Snær les þetta eins og opna bók og ver vel.
Stjarnan
79. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtBirnir Snær Ingason
76. mín
Hjalti Sigurðsson með máttlítið skot sem fer beint á Árna Snæ.
Stjarnan
74. mín
Gult spjald

Daníel Finns Matthíasson

Brýtur af sér við hliðarlínuna.
74. mín
Luke Rae fer niður í teignum en þetta var ekki neitt.
73. mín
Amin Cosic tekur skærin sín frægu, sendir fyrir og vinnur horn.
71. mín
KR-ingar að setja aukinn sóknarþunga í þetta en eru ekki að skapa sér nein alvöru færi á þessum kafla.
KR
64. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtAlexander Rafn Pálmason
64. mín
Amin Cosic með skot úr þröngu færi en Árni ver.
62. mín
Stefán Árni að gera sig kláran í að koma inná hjá KR.
60. mín
Rétt framhjá!
Birnir Snær með flotta rispu og á skot sem sleikir nærstöngina.
Stjarnan
59. mín
Gult spjald

Guðmundur Kristjánsson

Braut á Amin.
58. mín
Danni Finns með skot en beint á Halldór Snæ markvörð KR sem á ekki í neinum vandræðum.
56. mín
Stjarnan í hættulegri skyndisókn en Gabríel Hrannar kemst í boltann og nær að stöðva þetta.
54. mín
Amin og Gummi mættir aftur inn og allt komið á fleygiferð að nýju.
52. mín
Leikurinn stopp á meðan Amin Cosic fær aðhlynningu. Fékk högg í höfuðið í baráttu við hliðarlínuna. Hann og Gummi Kristjáns skullu saman.
49. mín
Danni Finns með tilraun en Halldór Snær slær boltann yfir.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Stjörnumenn byrja seinni hálfleik í sóknarhug og ekki lengi að koma sér í hörkufæri.
Stjarnan
46. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtÖrvar Eggertsson
Stjarnan
46. mín
InnBjarki Hauksson
ÚtIbrahim Turay
KR
46. mín
InnLuke Morgan Conrad Rae
ÚtSigurður Breki Kárason
KR
46. mín
InnHjalti Sigurðsson
ÚtFinnur Tómas Pálmason
45. mín
Bæði lið að fara að skipta í hálfleiknum
Haukur Brink og Luke Rae að koma inn.
45. mín
Hálfleiksmyndaveisla frá Hauki Gunnarssyni, ljósmyndara íslensku þjóðarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
45. mín
VÁ! Nóg í gangi og mikið fjör.
Kaffið kallar.
45. mín
ÁRNI SNÆR VER VÍTIÐ! SLÖK SPYRNA!
Alexander Rafn Pálmason fær svo frákastið. Ótrúlegt dauðafæri og markið galopið en hann hittir boltann herfilega og skýtur framhjá! ÓTRÚLEGAR SENUR HÉR!
45. mín
VÍTI!!! KR FÆR VÍTI!
Nokkrar sekúndur eftir að uppgefnum uppbótartíma. Birnir Snær tók Gyrði niður í teignum. Hárréttur dómur.
45. mín
Birnir skorar... en dæmd rangstaða!
Skorar af stuttu færi en flaggið fór á loft. Þarna héldu Stjörnumenn að þeir væru að komast í 3-1.
45. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma. Stjarnan á aukaspyrnu.
Stjarnan
44. mín
STJARNAN ER KOMIN YFIR!

Emil Atlason (stoðsending: Birnir Snær Ingason)

Birnir Snær með fyrirgjöf frá vinstri meðfram gervigrasinu og endar á Emil sem skorar af stuttu færi, stýrir boltanum í netið! Finnur Tómas ekki sáttur við varnarleik Gyrðis félaga síns og lætur hann heyra það. Stjarnan fengið fleiri góð færi en KR í þessum fyrri hálfleik.
42. mín
STÓRT ATVIK!
Gabríel Hrannar á harðaspretti og að sleppa í gegn en fer niður í kapphlaupi við Danna Finns. Ívar Orri dæmir ekki. Ef hann hefði dæmt aukaspyrnu hefði rautt farið á loft. Gabríel allt annað en sáttur.
39. mín
HAAA? SKYLDUSKORUNARFÆRI!
Hvernig fór Stjarnan að þessu! Jóhann Árni renndi boltanum á Danna Finns sem var í algjöru dauðafæri en renndi boltanum framhjá. Silfurskeiðin var byrjuð að fagna. "Æfa meira! Æfa æfa meira!" syngur Miðjan.
36. mín
Emil Atlason með geggjaða móttöku, kemur boltanum á Guðmund Baldvin sem á skot framhjá.
35. mín
Amin og Aron Sig leika boltanum vel á milli sín og það endar með því að Aron skýtur í hliðarnetið úr þröngu færi.
34. mín
brahim Turay öflugur og kemur sér í gott færi en Halldór Snæri gerir vel og lokar á hann.
33. mín
Eftir að hafa lent undir snemma leiks hafa Stjörnumenn náð að svara því vel og hafa svo sannarlega fengið færi til að vera komnir í forystuna í þessum leik.
30. mín
Myndir: Emil jafnaði með skalla
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
29. mín
Myndir: Eiður Gauti kom KR yfir
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
28. mín
DÓRI!!!
ÖRVAR EGGERTSSON í DAUÐAFÆRI en Halldór Snær nær að verja frábærlega. Þarna átti Örvar að skora!
27. mín
Stuðningsmenn KR baula, vildu aukaspyrnu þegar Alexander Rafn virtist hafa verið tekinn niður en ekkert dæmt.
26. mín
Birnir Snær vinnur hornspyrnu fyrir Stjörnuna. Jóhann Árni tekur hornið og gefur út á Birni sem á háa sendingu inn í teig sem Halldór grípur af öryggi.
23. mín
Góðar fréttir
Danni Finns búinn að fá aðhlynningu frá Agli Atlasyni og getur haldið leik áfram. Gott fyrir Stjörnuna.
21. mín
Danni Finns fékk högg í andlitið áðan og þarf aðhlynningu. Væri vont fyrir Stjörnuna ef hann þarf að fara af velli því hann hefur byrjað þennan leik frábærlega.
20. mín
Danni Finns gerir vel í að vinna boltann og kemur honum á Örvar sem er of lengi að athafna sig í teignum og þetta rennur út í sandinn.
18. mín
Svo nálægt!
Stjarnan svo nálægt því að ná forystunni en Emil Atlason skýtur framhjá.
17. mín
Amin!
Amin Cosic kemur sér í hættulega stöðu en skýtur framhjá! Sótt á báða bóga hér í Garðabæ.
16. mín
Stjörnuskot
Danni Finns með skot en beint á Halldór Snæ!
15. mín
Aron Sigurðarson vinnur hornspyrnu fyrir KR. Hrafn Tómasson fær boltann fyrir utan teig og ætlar að láta vaða en Emil Atlason kastar sér fyrir. Stuttu seinna fær Alexander Rafn hörkufæri en hittir ekki boltann. Heldur betur lífleg byrjun á þessum leik, enda ekki við öðru að búast.
Stjarnan
11. mín
Skalli í bláhornið!

Emil Atlason (stoðsending: Daníel Finns Matthíasson)

Danni Finns með frábæra aukaspyrnu inn í teiginn og Emil Atlason skallar knöttinn inn. Í atgangnum í teignum rekast Halldór Snær markvörður KR og Finnur Tómas á hvorn annan. Finnur þarf aðhlynningu.
KR
7. mín
Einfalt og gott!

Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Aron Sigurðarson)

Birnir Snær Ingason tapar boltanum á slæmum stað og KR-ingar ekki lengi að klára dæmið og refsa. Aron rennir boltanum á Eið Gaut sem er í dauðafæri og kemur boltanum framhjá Árna Snæ. Topplið Bestu deildarinnar hefur tekið forystuna.
4. mín
Örvar Eggertsson að sleppa í gegn en flaggið fer á loft. Örvar rangstæður. Nokkuð augljóslega.
1. mín
Alexander Rafn með upphafssparkið
KR hóf leik.
Fyrir leik
Allt klárt!
Fyrirliðarnir Guðmundur Kristjánsson og Aron Sigurðarson búnir í peningakasti með Ívari Orra dómara. Allt klárt fyrir stuðið! Miðjan er að sjálfsögðu löngu byrjuð að syngja og Silfurskeiðin trommar af krafti.
Fyrir leik
Frægir á vellinum
Kristinn Kjærnested með KR-trefil, Rúnar Páll Sigmundsson fyrrum þjálfari Stjörnunnar, Máni Pétursson er á heimavelli, Valur Páll Eiríksson er á Dúllubarnum, Mikael Nikulásson er búinn að koma sér fyrir KR meginn ásamt Óskari 'El Normale' Alfreðssyni, Eiður Smári Guðjohnsen er að störfum fyrir RÚV, Nemanja Pjevic aðstoðarþjálfari Leiknis búinn að stimpla sig inn og Sigrún María vallarþulur hefur boðið upp á Á móti sól og fleiri góð bönd í kerfinu.
Fyrir leik
Höfðinglegar móttökur
Eins og venjan er þegar maður mætir í Garðabæinn er öll þjónusta við íþróttafréttamenn algjörlega upp á tíu. Upphitun leikmanna er í fullum gangi og fólk er að gíra sig upp á Stjörnutorginu við stúkuna. Þar er svart/hvítt meira áberandi en blái liturinn verður að segjast.
Fyrir leik
Góðmennt á Dúllubar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tók smá stöðutjekk á Dúllubarnum og þar var virkilega góður andi. Atli Jónasson var að furða sig á því að hafa ekki fengið símtal frá Arnari Gunnlaugssyni eftir landsliðsval dagsins. Stjörnugoðsögnin Halldór Orri Björnsson einnig á svæðinu og virkaði ótrúlega bjartsýnn fyrir leik kvöldsins.
Fyrir leik
Siggi Helga að horfa á tvo leiki í einu
Siggi Helga fyrstur til að mæta í stúkuna hér í Garðabæ og situr með Man City trefilinn að horfa á sína menn í enska boltanum í símanum. Rétt áður en sá leikur hófst mætti hann í fréttamannastúkuna, nældi sér í kaffibolla og sagði sína skoðun á því að það væri Arsenal-slagsíða í stétt íslenskra íþróttafréttamanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Byrjunarlið KR: Fjórar breytingar
Fjórar breytingar hjá KR. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Sigurður Breki Kárason, Orri Hrafn Kjartansson og Eiður Gauti Sæbjörnsson koma inn í byrjunarliðið. Ástbjörn Þórðarson og Arnór Ingvi Traustason eru meiddir og ekki í hóp. Stefán Árni Geirsson og Luke Rae setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar: Waren meiddur
Sindri Þór Ingimarsson og Ibrahim Turay koma inn í byrjunarlið Stjörnunnar. Benedikt Warén fór meiddur af velli á föstudaginn og er ekki í hóp. Damil Serena Dankerlui er sömuleiðis ekki í hóp.
Fyrir leik
Aldrei séð svona stuðning áður
„Þetta verður algjör stemning, hörkuleikur milli tveggja góðra liða og við munum halda áfram þeirri orku og stemningu sem hefur verið frá upphafi tímabilsins," segir Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR. „Stuðningurinn hefur verið gjörsamlega geggjaður. Maður hefur ekki séð svona stuðning áður og ég hef fulla trú á að það haldi áfram!"
Fyrir leik
Samsung undir ljósunum = Veisla
„Byrjunin hefur ekki verið góð hjá okkur og við vitum það best sjálfir; mjög lélegt hvernig við náum ekki að klára seinustu tvo leiki. Við getum gert miklu betur í því að loka leikjum. Spilamennskan þarf að verða heilsteyptari og halda markinu okkar hreinu, það er skref eitt," segir Guðmundur Baldvin Nökkvason, leikmaður Stjörnunnar sem lofar skemmtilegum leik. „Samsung under the lights, þetta verður veisla, get lofað því."
   13.05.2026 12:30
„Byrjunin hefur ekki verið góð og við vitum það best sjálfir"
Fyrir leik
Starfið ekki undir í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum mínum frá innstu rótum Stjörnunnar þá er starfið hjá Jökli Elísabetarsyni ekki undir í leiknum í kvöld, en umræðan í hlaðvörpum og öðrum fjölmiðlum hefur verið á þá leið. En hlutirnir geta auðvitað breyst á einu augabragði í boltanum...
Fyrir leik
Upphitunarþáttur
Kári Snorrason og Almarr Ormarsson skoða alla bikarleikina í sérstökum upphitunarþætti. Þeir ræða meðal annars stöðu Jökuls í Garðabænum og stemninguna í kringum KR.
Fyrir leik
Óskar Hrafn: Jökull mikilvægur fyrir þessa deild
Býst Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við öðruvísi leik en þegar liðin áttust við í deildinni? „Ég hef ekki hugmynd. Það er það geggjaða við Jökul: Ég veit ekki hvað hann kemur með. Þess vegna er hann svona mikilvægur fyrir þessa deild. Hann gæti komið með það sama, gæti komið með eitthvað allt annað. Það er það sem er svo dásamlegt við hann. Að einhverju leyti var þessi fyrri hálfleikur skák,“ sagði Óskar.
   08.05.2026 21:51
Óskar Hrafn: Það er svo dásamlegt við Jökul
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Pressa á Jökli
Stjarnan hefur tapað fjórum leikjum í röð. Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar var spurður eftir síðasta leik: Finnst þér þú vera undir pressu? „Nei, ég finn það ekki. Ég er auðvitað svekktur fyrir hönd liðsins að það sé ekki að fá meira út úr þessu. Við erum með miklar væntingar til okkar og liðsins og ég til mín. Við erum ekkert að pæla í öðru. Ég átta mig alveg á að það er pressa og þetta er gott lið. Það er ekkert sem ég finn fyrir öðruvísi en ég vil að við gerum betur og vil ná því út úr liðinu sem við trúum að sé þarna.“
   11.05.2026 15:16
„Á meðan hann vappar hér um göturnar er enginn óhultur“
   08.05.2026 22:01
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Dómarar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Orri Kristjánsson flautar leikinn. Birkir Sigurðarson og Kristján Már Ólafs flagga. Jóhann Ingi Jónsson er með skiltið.
Fyrir leik
Önnur veisla framundan!
Liðin mættust hér á þessum sama velli síðasta föstudag í Bestu deildinni. KR vann þá 3-2 útisigur eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik. Stjarnan hefði svo átt að fá víti í lokin að mínu mati en ekkert var dæmt. Stjarnan 2 - 3 KR 1-0 Örvar Eggertsson 2-0 Benedikt V. Warén 2-1 Aron Sigurðarson 2-2 Luke Morgan Conrad Rae 2-3 Ástbjörn Þórðarson Lestu um leikinn
Fyrir leik
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Velkomin með okkur á Samsung! Hér er stórleikur framundan. Annað liðið fer í 8-liða úrslitin en hitt lýkur keppni í Mjólkurbikarnum þetta árið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
miðvikudagur 13. maí 17:30 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn) 19:15 HK-Víkingur R. (Kórinn) 19:15 Afturelding-Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá) 19:15 ÍA-Grindavík (ELKEM völlurinn) 20:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn) fimmtudagur 14. maí 14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn) 14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn) 15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.