Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
Davíð Smári: Miklar tilfinningar að keyra inn í bæinn
Birnir Snær: Reynir mest á hausinn
Arnór Ingvi: Allt á uppleið í KR og í Vesturbænum
Óskar Hrafn: Ber mikla virðingu fyrir körfu- og handboltaliðum
Hemmi: Ég er grautfúll
Gylfi: Mjög góðir þó að staðan hjá þeim er eins og hún er
Sölvi: Þarf að setja meiri pressu á Kára
Jökull: Stuðningsmennirnir eiga meira skilið
   fös 08. maí 2026 21:51
Kári Snorrason
Óskar Hrafn: Það er svo dásamlegt við Jökul
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull Elísabetarson.
Jökull Elísabetarson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR vann dramatískan endurkomusigur á Stjörnunni á Samsungvellinum í Garðabæ fyrr í kvöld.

Stjarnan leiddi með tveimur mörkum í hálfleik en KR-ingar gerðu sér lítið fyrir og skoruðu þrjú í þeim síðari og uppskáru 3-2 sigur.

Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leik.

Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  3 KR

„Hann var mjög sætur og sanngjarn fannst mér. Mér fannst við vera sterkara liðið í fyrri hálfleik en Stjarnan skoraði tvö góð mörk. Þá er þetta spurning hvernig þú bregst við.

Ég upplifði menn aðeins í fórnarlambsgírnum í hálfleik. Ósanngjarnt og eitthvað svona, sem þetta er ekki. Það er ekkert ósanngjarnt í fótbolta. Mér fannst menn svara vel í seinni hálfleik, um leið og við náðum fyrsta markinu fannst mér pendúllinn sveiflast hressilega með okkur.“


KR mætir Stjörnunni í Mjólkurbikarnum í næstu umferð.
Býstu við öðruvísi leik?

„Ég hef ekki hugmynd. Það er það geggjaða við Jökul: Ég veit ekki hvað hann kemur með. Þess vegna er hann svona mikilvægur fyrir þessa deild.

Hann gæti komið með það sama, gæti komið með eitthvað allt annað. Það er það sem er svo dásamlegt við hann. Að einhverju leyti var þessi fyrri hálfleikur skák,“
sagði Óskar.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner