„Byrjunin hefur ekki verið góð og við vitum það best sjálfir"

'Við þurfum að fylgja leikskipulaginu og vera með kveikt á okkur allan leikinn'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við gerðum hluti í seinasta leik vel sem við munum halda áfram að gera, en á móti var sumt ekki nægilega gott sem þarf að laga'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'KR liðið lítur vel út og þeir hafa gert mjög vel í upphafi móts. Hrós á þá'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Við þurfum að fylgja leikskipulaginu og vera með kveikt á okkur allan leikinn'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað verður á Samsungvellinum í Garðabæ.
Liðin mættust á föstudag í Bestu deildinni, KR kom til baka í þeim leik og vann 2-3 sigur. Stjarnan hefur tapað fjórum leikjum í röð en KR hefur unnið alla leiki sína á tímabilinu.
Guðmundur Baldvin Nökkvason er leikmaður Stjörnunnar og hann svaraði spurningum Fótbolta.net fyrir leikinn.
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum
„Þetta verður skemmtilegur leikur, KR-ingar eru með drullu gott lið og eru á mjög góðum stað."
„Við þurfum að fylgja leikskipulaginu og vera með kveikt á okkur allan leikinn."
Alltaf glatað að tapa
Stjörnumaðurinn var spurður út í síðasta leik og byrjunina á tímabilinu.
„Það er alltaf glatað að tapa en við gerðum hluti í seinasta leik vel sem við munum halda áfram að gera, en á móti var sumt ekki nægilega gott sem þarf að laga."
„Byrjunin hefur ekki verið góð hjá okkur og við vitum það best sjálfir; mjög lélegt hvernig við náum ekki að klára seinustu tvo leiki. Við getum gert miklu betur í því að loka leikjum. Spilamennskan þarf að verða heilsteyptari og halda markinu okkar hreinu, það er skref eitt."
Hrós á KR
Hvernig sér byrjun KR á sínu tímabili við þér?
„KR liðið lítur vel út og þeir hafa gert mjög vel í upphafi móts. Hrós á þá."
Lofar veislu
Leikur klukkan 20:00 á Samsungvellinum, hvernig verður þetta?
„Samsung under the lights, þetta verður veisla, get lofað því," segir Guðmundur Baldvin.

'Við gerðum hluti í seinasta leik vel sem við munum halda áfram að gera, en á móti var sumt ekki nægilega gott sem þarf að laga'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'KR liðið lítur vel út og þeir hafa gert mjög vel í upphafi móts. Hrós á þá'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

