11.05.26 - 15:16
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Á meðan hann vappar hér um göturnar er enginn óhultur“

Frá vinstri: Hrannar Bogi Jónsson, Jökull Elísabetarson og Halldór Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan er með sex stig eftir fyrstu sex umferðirnar.

Stjarnan tapaði sínum fjórða leik í röð á föstudaginn þegar liðið missti niður tveggja marka forystu gegn KR og tapaði 3-2.
Pressan hefur því aukist töluvert á Jökli Elísabetarsyni, þjálfara Stjörnunnar. Liðin mætast aftur á miðvikudaginn í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Staða Jökuls og stjórastóllinn í Garðabæ voru til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolta.net á laugardag.

TENGT EFNI
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
Mun KR-tvennan ráða örlögum Jökuls?
„Þær sögusagnir fóru af stað að þessi KR-tvenna myndi ráða örlögum Jökuls. Þeir tapa auðvitað þessum deildarleik, verður Jökull að slá út KR í bikarnum annars verða þjálfaraskipti í Garðabænum?“ Spurði Elvar Geir.
„Ég myndi segja það já. Þeir ætluðu að stefna á titilinn í ár, þeir eru tólf stigum frá efsta sætinu og hafa tapað fjórum leikjum í röð með þetta lið,“ sagði Valur Gunnarsson.
Enginn óhultur
Tómas Þór tók því næst til máls: „Þessi titilbarátta er nánast farin og mótið er varla byrjað. Þá þurfa menn að hugsa um Evrópu, því allt sem þeir leggja í þetta kostar peninga. Ef þú ætlar að vera með svona fótboltalið, verðuru að vera í Evrópu.“
„Það er ein breyta í þessu í viðbót: Er einhver annar (þjálfari laus)? Því miður er einn nýlegur Íslandsmeistari á Suðurlandsbraut 10. Sem er að sjálfsögðu Halldór Árnason. Á meðan hann vappar hér um göturnar er enginn óhultur.“