Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Í BEINNI
Undankeppni HM kvenna
Ísland
LL 1
6
Spánn
Ísland
1
6
Spánn
0-1 Vicky López '5
0-2 Edna Imade '37
0-3 Salma Paralluelo '45
0-4 Vicky López '50
Linda Líf Boama '58 1-4
1-5 Cllaudia Pina '68
1-6 Aitana Bonmatí '84
09.06.2026  -  19:00
Laugardalsvöllur
Undankeppni HM kvenna
Dómari: Miriama Bockova (Slóvakía)
Áhorfendur: 2517
Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen ('77)
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir ('61)
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Diljá Ýr Zomers ('61)
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
17. Ída Marín Hermannsdóttir ('46)
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir ('46)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Arna Eiríksdóttir ('61)
5. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir
7. Katla Tryggvadóttir
11. Birta Georgsdóttir ('77)
14. Hlín Eiríksdóttir ('61)
15. María Catharina Ólafsd. Gros
16. Hildur Antonsdóttir ('46)
21. Jelena Tinna Kujundzic
22. Linda Líf Boama ('46)
23. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Ólafur Helgi Kristjánsson
Dúna

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ekki sekúndu bætt við.

Íslenska liðið sá takmarkað til sólar í kvöld og sigurinn er fyllilega sanngjarn gegn liði sem við áttum litla möguleika gegn. Margt sem við getum lært af leik kvöldsins og vonandi er þetta varða á þeirri vegferð sem liðið er á.

Ljósu punktarnir eru að Linda Líf Boama er komin á blað með landsliðinu.

Viðtöl úr Laugardal eru væntanleg.
Sverrir Örn Einarsson
89. mín
2517 áhorfendur lögðu leið sína á Laugardalsvöll í kvöld.
Sverrir Örn Einarsson
84. mín MARK!
Aitana Bonmatí (Spánn)
Kunnulegt stef mistök = refsing Bonmati leikur til vinstri frá D-boga og lætur vaða með vinstri fæti og boltinn syngur í netinu.

Þetta hefur bara verið of einfalt fyrir lið Spánar í kvöld.
Sverrir Örn Einarsson
83. mín
Hætta í teig Íslands og boltinn liggur í netinu. Búið að dæma brot á Ednu Imade fyrir klafs í teignum svo það telur ekki.
Sverrir Örn Einarsson
79. mín
Næstum sjálfsmark Bonmati að leika listir sínar úti til hægri, setur boltann fyrir markið þar sem boltinn hrekkur af Örnu í átt að marki en Ceci rétt nær að slá boltann frá áður en hann fer yfir línuna.
Sverrir Örn Einarsson
77. mín
Inn:Birta Georgsdóttir (Ísland) Út:Sandra María Jessen (Ísland)
Sverrir Örn Einarsson
76. mín

Aitana Bonmatí með skalla að marki eftir horn en boltinn beint á Cecilíu.
Sverrir Örn Einarsson
73. mín
Karólína Lea með skot úr þröngu færi sem Spánverjar komast fyrir.

Ísland fær horn.
Sverrir Örn Einarsson
71. mín
Inn:María Méndez (Spánn) Út:Irene Paredes (Spánn)
Sverrir Örn Einarsson
68. mín MARK!
Cllaudia Pina (Spánn)
Stoðsending: Eva Navarro
Og þær spænsku skipta þá bara um gír!
"Cutback" sending frá hægri vængnum inn á teiginn frá Navarro, Þar mætir Claudia Pina og setur hann í fyrsta úr teignum í stöngina inn.
Sverrir Örn Einarsson
67. mín
Íslenska liðið verið mun ákveðnara í sínum aðgerðum í síðari hálfleik heldur en þeim fyrri, pressan að mörgu leyti verið markvissari og liðið "þorað" meira.
Sverrir Örn Einarsson
61. mín
Inn:Hlín Eiríksdóttir (Ísland) Út:Diljá Ýr Zomers (Ísland)
Systur mæta til vallar!
Sverrir Örn Einarsson
61. mín
Inn:Arna Eiríksdóttir (Ísland) Út:Ingibjörg Sigurðardóttir (Ísland)
Systur mæta til vallar!
Sverrir Örn Einarsson
58. mín MARK!
Linda Líf Boama (Ísland)
Stoðsending: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Fyrsta landsliðmark Lindu! Virkilega vel útfærð skyndisókn Íslands.

Karólína Lea vinnur boltann og Ísland brunar upp, Karólína finnur Lindu í hlaupinu inn á teiginn til hægri, hún tekur vel á móti boltanum og klárar vel á nærhornið fram hjá Coll í marki Spánar.
Sverrir Örn Einarsson
57. mín
Inn:Eva Navarro (Spánn) Út: Ona Batlle (Spánn)
Sverrir Örn Einarsson
57. mín
Inn:Clara Serrajordi (Spánn) Út:Patri Guijarro (Spánn)
Sverrir Örn Einarsson
54. mín
Alexia Putellas fær langan tíma til að athafna sig í teignum eftir sókn Spánar og nær að endingu skotinu. Setur það sem betur fer yfir markið.
Sverrir Örn Einarsson
53. mín
Besta færi Íslands Ísland vinnur boltann strax eftir innkastið. Linda Líf finnur Karólínu í teignum sem reynir skotið en setur boltann rétt framhjá stönginni.
Sverrir Örn Einarsson
52. mín
Innkast dæmt af Íslandi þar sem Sædís var of lengi að athafna sig.
Sverrir Örn Einarsson
50. mín MARK!
Vicky López (Spánn)
Gæðin eru rosaleg
Misheppnuð sending Íslands á eigin vallarhelmingi og boltinn til Spánar, hann sendur rakleitt á Vicky sem stendur við D-bogann og hikar ekkert heldur neglir boltanum óverjandi í netið.

4-0 og haldi þetta svona áfram gæti þetta orðið ansi ljótt.
Sverrir Örn Einarsson
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Sverrir Örn Einarsson
46. mín
Inn:Cllaudia Pina (Spánn) Út:Salma Paralluelo (Spánn)
Sverrir Örn Einarsson
46. mín
Inn:Aitana Bonmatí (Spánn) Út: Mariona Caldentey (Spánn)
Sverrir Örn Einarsson
46. mín
Inn:Linda Líf Boama (Ísland) Út:Thelma Karen Pálmadóttir (Ísland)
Sverrir Örn Einarsson
46. mín
Inn:Hildur Antonsdóttir (Ísland) Út:Ída Marín Hermannsdóttir (Ísland)
Sverrir Örn Einarsson
45. mín
Hálfleikur
Sverrir Örn Einarsson
45. mín
Hálfleikur
Spánverjar ráðið lögum og lofum á vellinum og leiða verðskuldað. Ísland á engan hátt ráðið við leik þeirra í fyrri hálfleik enda Spánn sýnt afhverju þær eru besta lið í heiminum í dag.

En við þurfum að gera betur varnarlega klárlega, þær eru að fá of mikin tíma og pláss og hafa refsað fyrir það.
Sverrir Örn Einarsson
45. mín MARK!
Salma Paralluelo (Spánn)
Stoðsending: Ona Batlle
Þetta var of auðvelt

Ona Batlle alein úti á hægri vængnum og hefur þann tíma og það pláss til að gera hvað sem henni dettur í hug. Salma Paralluelo alein í teignum, fær boltann og skorar auðveldlega af stuttu færi.
Sverrir Örn Einarsson
43. mín
Sandra María tapar boltanum klaufalega og Spánverjar bruna upp, Sandra keyrir það eina rétta og keyrir á eftir þeim og brýtur til að stöðva skyndisókn.

Vinnusemin til fyrirmyndar þar að vanda.
Sverrir Örn Einarsson
41. mín
Ísland með skot að marki
Fínn kafli Íslands sem heldur boltanum lengur en fyrr í leiknum. Sóknin endar með skoti frá Alexöndru af talsverðu færi sem fer framhjá markinu.
Sverrir Örn Einarsson
37. mín MARK!
Edna Imade (Spánn)
Stoðsending: Ona Batlle
Ein mistök og Spánn refsar
Ingibjörg reynir að hreina boltann frá en setur hann beint í Batlle, boltinn fellur þægilega fyrir hana hægra megin í teignum og getur hún valið að skjóta sjálf eða setja boltann fyrir markið. Hún velur seinni kostinn og finnur þar Imade sem skorar þægilega úr miðjum markteignum.
Sverrir Örn Einarsson
35. mín
Patri með skot eftir enn eina sóknarlotu Spánar. Úr ágætri stöðu í D-boganum en setur boltann yfir markið.
Sverrir Örn Einarsson
32. mín

Alexia Putellas með tilraun að markið eftir darraðardans í teig Íslands, setur boltann framhjá afturfyrir sig af stuttu færi.
Sverrir Örn Einarsson
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín

Salma Paralluelo með skot eftir hraða sókn Spánar, Glódís mætt og kemur sér fyrir skotið.
Sverrir Örn Einarsson
24. mín
Spánn fær aukaspyrnu á fínum stað eftir að Karólína Lea brýtur á Patri.

Vantar ekki spyrnugetuna í þetta spænska lið.

Sending inn á teiginn en Sandra María skallar boltann frá.
Sverrir Örn Einarsson
23. mín

Vicky López að ógna, með skot úr teignum en Cecilía ver og heldur boltanum.
Sverrir Örn Einarsson
17. mín
Frábær varsla Salma Paralluelo í dauðafæri í markteignum eftir sendingu frá Vicky, nær boltanum eftir fyrirgjöf og setur boltann á markið en Cecilía vandanum vaxin og ver vel.
Sverrir Örn Einarsson
17. mín
Yfirburðir Spánar miklir úti á velli og lið Íslands lítið náð að "klukka" þær varnarlega til þessa í leiknum.
Sverrir Örn Einarsson
12. mín
Salma Paralluelo í hörkufæri í teignum en Diljá rennir sér fyrir skot hennar.

Spánn fær hornspyrnu.

Hornið tekið stutt, Vicky Lopez með boltann við vinstra vítateigshorn og reynir sendingu inn á teiginn sem hafnar í fangi Cecilíu.
Sverrir Örn Einarsson
8. mín
Ekki byrjunin sem íslenska liðið vonaðist eftir.
Sverrir Örn Einarsson
5. mín MARK!
Vicky López (Spánn)
Stoðsending: Patri Guijarro
Vá! Spænska liðið heldur boltanum vel úti á hægri vængnum og sprengir svo með virkilega snotru þríhyrningsspili. Patri leggur boltann inn á teiginn fyrir Vicky sem skorar með snyrtilegu skoti.

Þær eru ótrúlega góðar í því að láta boltann vinna fyrir sig.
Sverrir Örn Einarsson
3. mín
Vicky López í prýðis skotfæri í D-boganum á teig Íslands, velur að senda boltann frekar út á væng og setur of mikið púður í sendinguna sem fer afturfyrir.

Þær spænsku mega taka svona ákvarðanir í allt kvöld.
Sverrir Örn Einarsson
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað í Laugardal. Það er Ísland sem hefur hér leik og Karólína Lea sparkar þessu af stað.

Áfram Ísland!
Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
2x slagur við ríkjandi heimsmeistara! Bæði kvenna og karlalandslið Íslands eigast við ríkjandi heimsmeistara í leikjum sínum núna með nokkra klukkustunda millibili.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stelpurnar eigast þá auðvitað við lið Spánar sem hefst eftir skamma stund!

Strákarnir okkar hins vegar mæta Argentínu í vináttulandsleik í Auburn Alabama klukkan 01:00 á íslenskum tíma.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Uppstilling Íslands
Mynd: Sverrir Örn Einarsson

Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Byrjunarliðið klárt! Steini þjálfari gerir tvær breytingar á liðinu sem lagði Úkraínu að velli á föstudaginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Diljá Ýr Zomers og Ída Marín Hermannsdóttir koma inn fyrir Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur og Hildi Antonsdóttur sem setjast á bekkinn.

Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Diljá Ýr Zomers
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
17. Ída Marín Hermannsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir



Fyrir leik
Fyrri leikurinn í Castellon Fyrri leikur liðanna fór fram í Castellon þann 3. mars sl. þar sem Spánverjar fóru með 3-0 sigur af hólmi. Clàudia Pina gerði þá fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks eftir umdeilt atvik.

Hún bætti svo við öðru marki sínu í seinni hálfleik áður en Edna Imade rak smiðshöggið og innsiglaði 3-0 sigurinn.

Íslenska liðið var þétt varnarlega og átti Cecilía hverja meistaravörsluna á fætur annarri. Hins vegar var lítið að frétta í sóknarleiknum og spilaðist leikurinn mikið til á vallarhelmingi Íslands.

Spánn sigraði England 4-0 á dögunum og koma því inn í þennan leik sjóðheitar. Það mun því mæða mikið á öftustu línu Íslands ef ekki á illa að fara.

Mynd: EPA

Fyrir leik
Staðan í riðlinum - Allt undir hjá Spáni en Ísland í umspil Lokaleikirnir í riðlinum fara fram á sama tíma klukkan 19:00 í kvöld.

Ísland tekur á móti Spáni á Laugardalsvelli á meðan England mætir Úkraínu.Fyrir leiki kvöldsins er staðan í riðlinum svona:

Spánn - 12 stig
England - 12 stig
Ísland - 6 stig
Úkraína - 0 stig

Íslenska liðið hefur þegar tryggt sér 3. sæti riðilsins, með sigrinum á Úkraínu, í síðasta leik. Það breytir engu hvað gerist í kvöld, Ísland fer beint í umspilsleiki í haust þar sem mætt verður liði úr C-deild Þjóðadeildarinnar um sæti á HM í Brasilíu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir Spánverja er hins vegar allt undir en þær eru jafnar Englandi að stigum á toppi riðilsins en með betri markatölu. Spánn verður því að vinna í kvöld til að tryggja sér HM-sætið beint ef England vinnur Úkraínu.

Sarina Wiegman, þjálfari Englands, viðurkenndi í gær að hún muni fylgjast stressuð með því hvað gerist hér í Reykjavík!


Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins Dómararnir í dag koma frá Slóvakíu

Með flautuna í dag er Miriama Bocková, henni til halds og trausts eru Miroslava Pastoreková og Martina Ukropova aðstoðadómarar.

Fjórði dómari í kvöld er svo Zuzana Valentová

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fyrir leik
Landsliðið kallar! Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu beint frá Laugardalsvelli þar sem stelpurnar okkar taka á móti heimsmeisturum Spánar.

Leikurinn hefst á slaginu 19:00!

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Byrjunarlið:
13. Cata Coll (m)
2. Ona Batlle ('57)
4. Irene Paredes ('71)
8. Mariona Caldentey ('46)
11. Alexia Putellas
12. Patri Guijarro ('57)
14. Vicky López
16. Mapi Léon
17. Lucía Corrales
18. Salma Paralluelo ('46)
22. Edna Imade

Varamenn:
1. Misa Rodríguez (m)
23. Adriana Nanclares (m)
3. Jana Fernàndez
5. María Méndez ('71)
6. Aitana Bonmatí ('46)
7. Olga Carmona
9. Clara Serrajordi ('57)
10. Athenea del Castillo
15. Laia Codina
19. Eva Navarro ('57)
20. Cllaudia Pina ('46)
21. Fiamma

Liðsstjórn:
Sonia Bermúdez (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: