Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þjálfari Englands: Svo bíðum við eftir því hvað gerist í Reykjavík
Eimskip
Sarina Wiegman á Laugardalsvelli í vor.
Sarina Wiegman á Laugardalsvelli í vor.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland mætir Spáni klukkan 19:00 í dag og á sama tíma mætir England liði Úkraínu í lokaumferð riðlakeppninnar í undankeppni HM. Ljóst er að Ísland endar í 3. sæti riðilsins en möguleiki er á því að England nái toppsætinu af Spáni með hagstæðum úrslitum í kvöld. Toppsætið fer beint á HM en liðin í 2.-4. sæti þurfa að fara í umspil.

Sarina Wiegman, þjálfari Englands, var spurð út í þann möguleika á fréttamannafundi fyrir leikinn.

„Það var högg að tapa 4-0 gegn Spáni. Það sem við getum stjórnað er okkar leikur og það væri mjög gott fyrir okkur að skora snemma, það er markmiðið. Við viljum skapa færi, skora mörk og halda hreinu. Það myndi hjálpa að skora snemma og svo bíðum við eftir því hvað gerist í Reykjavík," sagði Wiegman um lokaumferðina.

Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska liðsins, var spurð á fréttamannafundi í gær hvort hún hefði fengið einhver skilaboð frá enska liðinu.

„Við erum fyrst og fremst að spila þennan leik fyrir okkur sjálfar. Við skuldum Englandi ekki neitt. Við erum að fara í þennan leik til að vinna hann, auðvitað, sama hvaða áhrif sem það hefur á þessa undankeppni. Ég hef engar svakalegar áhyggjur af að þessi lið komist ekki bæði á HM, hvernig sem þessi riðill fer. Við förum bara í leikinn til að spila vel og ná í góð úrslit fyrir okkur sjálfar," sagði Glódís.
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Spánn 5 4 0 1 15 - 2 +13 12
2.    England 5 4 0 1 10 - 5 +5 12
3.    Ísland 5 2 0 3 2 - 6 -4 6
4.    Úkraína 5 0 0 5 2 - 16 -14 0
Slapp
banner