Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
banner
   sun 07. júní 2026 19:12
Snæbjört Pálsdóttir
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Eimskip
„Vonandi stela þessum þrem stigum,“ segir Sædís fyrir risaverkefnið gegn heimsmeisturum Spánar.
„Vonandi stela þessum þrem stigum,“ segir Sædís fyrir risaverkefnið gegn heimsmeisturum Spánar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sædís Rún er ekki stærsti aðdáandi nýju reglanna um tafir
Sædís Rún er ekki stærsti aðdáandi nýju reglanna um tafir
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska kvennalandsliðið mætir ríkjandi heimsmeisturum Spánar á þriðjudag í undankeppni HM. Sædís Rún Heiðarsdóttir, segir íslenska liðið koma pressulaust inn í leikinn eftir dýrmætan sigur gegn Úkraínu.

„Það leggst bara mjög vel í mig. Við erum spenntar að fá þær hingað á okkar heimavöll og spennandi verkefni,“ segir Sædís Rún


Ísland kemur inn í leikinn eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu þar sem liðið sýndi fagmennsku þrátt fyrir að leikurinn hafi ekki verið sá glæsilegasti. 

„Þetta var kannski ekki fallegasti fótboltaleikur sem maður hefur spilað. Þetta var svolítið bara leikur sem við þurftum bara að klára og spila á því sem leikmaninn krafðist og mér fannst við gera það vel. Höldum hreinu og skorum mark og þá tekur maður þrjú stig.“

Thelma Karen setti sitt fyrsta landsliðsmark í þeim leik og Sædís sparaði ekki hrósið þegar hún var spurð út í hana.

„Það er frábært, það eru mikil gæði sem búa í henni Thelmu. Geggjað að sjá hana blómstra og hvernig hún hefur komið inn í landsliðinu, því hún hefur gert það virkilega vel.“

 Mikið hefur verið rætt um nýju reglurnar varðandi tímamörk í innköstum og markspyrnum og er Sædís er ekki stærsti aðdáandi þeirra.

„Mér fannst þær kannski vera að taka þessu full alvarlega. Ég er ekki viss um að þetta verði alveg svona en ég get ekki sagt að ég sé stærsti aðdáandi þessa reglna. Mér finnst þetta svolítið ýkt.“

Sædís býst við allt öðru verkefni gegn heimsmeisturunum þar sem íslenska liðið muni þurfa að verjast töluvert meira en gegn Úkraínu.

„Maður gerir sér alveg grein fyrir því að þetta er aðeins öðruvísi hlutverk sem maður er að fara í miðað við leikinn sem við vorum í. Það er líka bara fínt að máta sig við þessi lið og sjá hvar við stöndum. Komum kannski pressulausar en engu að síður ætlum við að fara inn í þennan leik til að taka skref fram á við og vonandi stela þessum þrem stigum.“

Hvað þarf að gerast til að stela þessum stigum?

„Við þurfum að vera þéttar varnarlega og fara svolítið bakvið þær. Sérstaklega í byrjun, við viljum ekki að þær komist inn í leikinn með því að gefa þeim einhverja bolta ofarlega á vellinum. Svo þurfum við náttúrulega bara að spila okkar fótbolta og við höfum sýnt það að á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum.“

Sjáðu viðtalið í heild i spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner