Ungir og nýir leikmenn voru í brennidepli á blaðamannafundi landsliðsins í dag. Glódís Perla og Steini ræddu um Thelmu Karen Pálmadóttur, sem tryggði Íslandi sigurinn gegn Úkraínu, nýliðann Jelenu Tinnu Kujundzic og þau risastóru tíðindi að Sara Björk Gunnarsdóttir sé mætt aftur í íslenska fótboltann.
Thelma Karen átti sviðið gegn Úkraínu og fyrirliðinn spáir henni glæstri framtíð. „Hún hefur komið inn af miklum krafti og er gríðarlega sterkur leikmaður,“ segir Glódís Perla.
„Búin að fá mikinn spilatíma og er að spila vel út í Svíþjóð. Gaman að fá hana hingað inn, hún er að stíga upp og taka sénsinn þegar hann kemur og hún gerði það virkilega vel gegn Úkraínu. Gríðarlega skemmtilegur karakter og ég held að hún eigi bjarta framtíð fyrir sér með landsliðinu.“
Steini landsliðsþjálfari tók undir þetta „Hún hefur tekið miklum framförum í Svíþjóð og tók miklum framförum síðasta sumar á Íslandi.“
Steini var þá spurður út í val sitt á Jelenu Tinnu Kujundzic fyrir þennan hóp.
„Hún er búin að standa sig vel á þessu ári, hún er svo sem búin að vera með í þessum stóra, massa hópa sem ég vel eftir og fylgist með. Mér finnst hún hafa verið að sýna framfarir á síðustu 18 mánuðum. Hefur komið vel inn og verið góð á æfingunum. Hún sýnir það að hún er á réttri leið.“
Að lokum var Glódís spurð út í forvera sinn í fyrirliðastöðunni hjá landsliðinu, Söru Björk Gunnarsdóttur , og þau risa tíðindi að hún væri mætt aftur heim í Lengjudeildina með Haukum.
„Bara skemmtilegt, ég held að það sé frábært fyrir íslenskan fótbolta að fá Söru Björk aftur inn í hann og hún kemur náttúrulega með 15 ára reynslu úr hinum og þessum bestu liðum Evrópu og heims. Ég held að hún sé bara að fara gefa gríðarlega mikið af sér og vonandi bara að hjálpa til við að þróa íslenskan fótbolta ennþá meira.“

