„Ég er alveg sáttur við þennan leik. Mér fannst við eiga vinna þetta stærra. Það var kannski smá stress í okkur í lokin," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir 0-1 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.
„Við fáum bestu færin fannst mér. Í fyrri hálfleik eitt og svo fengum dauðafæri í seinni hálfleik sem við áttum að klára. Það virðist vera erfitt fyrir Ísland að vinna Úkraínu með meira en einu marki."
„Við fáum bestu færin fannst mér. Í fyrri hálfleik eitt og svo fengum dauðafæri í seinni hálfleik sem við áttum að klára. Það virðist vera erfitt fyrir Ísland að vinna Úkraínu með meira en einu marki."
Lestu um leikinn: Úkraína 0 - 1 Ísland
Stóra markmiðið var að vinna þennan leik og komast nær HM sem fer fram á næsta ári.
„Við ætluðum að fara með þrjú stig héðan, líða vel í kvöld og fara svo að undirbúa fyrir Spán á morgun."
Fóru yfir þetta í gær
Hildur Antonsdóttir, miðjumaður Íslands, talaði um það í viðtali eftir leikinn að dómari leiksins hefði átt í vandræðum. FIFA er að innleiða nýjar reglur sem munu meðal annars vera í gildi á HM í sumar. Reglurnar segja meðal annars til um að dómari eigi að telja niður við innkast og markspyrnur og leikmaður sem fær aðhlynningu verður að vera út af í 60 sekúndur. Þessar reglur voru í gildi í leiknum í kvöld og tók dómarinn mjög hart á því.
„Já, algjörlega. Hún var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir," sagði Steini.
„Við vorum aldrei að tefja í leiknum og þær voru aldrei að tefja. Það á bara að vera eðlileg þróun á leiknum. Ef það er verið að tefja þá byrjarðu að telja niður."
Steini segir að það hafi verið búið að ræða það innan liðsins að dómaratríóið myndi taka hart á þessum reglum.
„Hraðinn í öllu sem var að gerast var óeðlilegur. Ég sagði við þær í gær að dómarinn yrði bókstafatrúar. Við yrðum að vera svellköld í kollinum og tilbúin að takast á við það. Þetta var fyrsti leikur (með nýjum reglum) og það er ekkert óeðlilegt við það, einhver eftirlitsmaður að fylgjast með og þær eru hræddar við eitthvað. Þú ert að dæma fyrsta leikinn með nýjum reglum og þá verður kannski ofnotkun á þeim."
Steini telur að þróunin verði betri í framhaldinu en hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.





















