Íslenska kvennalandsliðið mætir ríkjandi heimsmeisturum Spánar á þriðjudag í undankeppni HM. Guðrún Arnardóttir segir liðið hafa sýnt gegn Englandi að það geti staðið jafnfætis bestu liðum heims.
„Bara mjög vel, þetta verður skemmtilegur leikur. Það er gaman að mæta svona góðu liði og mér fannst við sýna það í síðasta verkefni á móti Englandi að við getum alveg átt alvöru leik á móti þessum liðum.“ segir Guðrún um komandi stórleik gegn Spáni.
Ísland kemur inn í leikinn eftir 1-0 sigur gegn Úkraínu, leik sem Guðrún viðurkennir að hafi ekki verið sá glæsilegasti á augað en engu að síður fagmannlegur.
„Þetta var kannski ekki fallegasti fótboltaleikurinn en mér fannst þetta samt bara svolítið fagmannlega gert hjá okkur. Mér fannst við vera betra liðið og mér fannst við vera með kontról á leiknum allan tímann. Við sköpuðum okkur alveg færi til að skora fleiri mörk líka.“
Mikið hefur verið rætt um nýju reglurnar varðandi tímamörk í innköstum og markspyrnum, hvernig upplifði Guðrún þetta í leiknum?
„Mér fannst þetta alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin. Eina sem ég heyrði allan leikinn var dómarinn að telja niður frá fimm, þó það væri ekkert verið að tefja. Fyrir mér má kannski alveg grípa í þetta þegar það er verið að tefja en það þarf ekki að gera það allan leikinn og í hverju einasta mómenti. Þetta var rosalega mikið og ekki eitthvað sem ég er aðdáandi af.“
Til að ná úrslitum gegn Spánverjum segir hún að íslenska liðið verði að sýna hugrekki.
„Við þurfum að vera svolítið hugrakkar, við þurfum að þora að verjast fram á við, halda í boltann og sækja á bakvið þær. Þær eru rosalega gott lið en við höfum sýnt það að við erum það líka.“
„Við vitum að þetta eru leikmenn sem vilja mikið spila stutt, spila sig í kringum leikmenn, þannig við þurfum að passa okkur bara á að leyfa þeim ekki að fara í það. Vera með coveruð svæðin sem þær vilja leita í.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan:
























