„Þetta var bara geðveikt, frábær tilfinning. Ég er smá fúl samt að hafa ekki skorað fleiri," sagði landsliðskonan Thelma Karen Pálmadóttir í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Þessi 18 ára gamli leikmaður gerði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Ísland í 1-0 sigri gegn Úkraínu. Hún var hetjan í leiknum, í sínum fjórða A-landsleik.
Þessi 18 ára gamli leikmaður gerði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Ísland í 1-0 sigri gegn Úkraínu. Hún var hetjan í leiknum, í sínum fjórða A-landsleik.
Lestu um leikinn: Úkraína 0 - 1 Ísland
„Á góðum degi hefðu þetta verið þrjú eða fjögur mörk. Ætli ég verði ekki bara að sætta mig við eitt mark í dag?"
„Þetta er bara frábær tilfinning," sagði Thelma Karen, eitthvað sem hún hefur beðið eftir lengi.
„Alveg klárlega. Þetta hefur alltaf verið bak við eyrað þegar maður er að spila. Núna verða þau bara vonandi fleiri."
Þetta er augnablik sem maður hugsar um þegar maður byrjar að sparka í fótbolta.
„Þetta er alveg draumur, markmiðið að skora með A-landsliðinu. Það er frábært að hafa gert það í dag."
Ísland komst skrefi nær HM í dag. „Að hugsa um HM í Brasilíu er eitthvað sem mótíverar mann til að gefa allt í leikina og vinna hvern einasta leik. Brasilía er draumaland að fara til og spila á HM. Við munum gera allt til að komast þangað," sagði Thelma Karen að lokum.























