Leik lokið!
Fylkir vinnur endurkomusigur
Fylkismenn sýndu gæðin í seinni hálfleik og ná líklegast verðskulduðum sigri. Skýrsla og viðtöl detta inn seinna í kvöld, ég þakka fyrir mig.
95. mín
Sigurinn gulltryggður
Theodór Ingi Óskarsson
Fylkir í skyndisókn en Völsungur ná valdi á boltanum og senda til baka. Theodór er hins vegar mættur, leikur á markmanninn og skorar í autt markið.94. mín
Gestirnir búnir að vera í sókn undanfarnar mínútur, spurning hvort þeir nái að jafna metin.
93. mín
InnÞórður Ingi Ingimundarson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
92. mín
InnTryggvi Grani Jóhannsson
ÚtModoumatarr Mbye
87. mín
InnSteinþór Freyr Þorsteinsson
ÚtElmar Örn Guðmundsson
Tvöföld breyting
87. mín
InnFernando Jimenez Arranz
ÚtInigo Albizuri Arruti
85. mín
Theodór nálægt því að bæta við sínu öðru marki. Fyrirgjöf inn í teig sem berst á hann en skotið meðfram jörðinni beint á Victor sem kemur honum frá.
81. mín
Gult spjald
Xabier Cardenas Anorga
Brýtur á Theodór við varamannaskýlin.79. mín
Gult spjald
Máni Austmann Hilmarsson
Reynir að tefja aukaspyrnu.76. mín
EKKI LENGI AÐ SNÚA ÞESSU VIÐ
Hlynur Sævar Jónsson
Ég gæti gert ctrl+c og ctrl+v. Mjög svipuð mörk, eins afgreiðslur. Eins góðir og Völsungar hafa verið undanfarnar mínútur hafa þeir alveg sofnað á verðinum í þessum tveimur mörkum og gleymt að dekka menn.75. mín
Gult spjald
Modoumatarr Mbye
Stoppar sprett. Augljóst gult.74. mín
ALLT JAFNT
Theodór Ingi Óskarsson
Fylkir hefur legið þungt á Völsungum undanfarnar mínútur. Boltinn berst á Theodór inn í teignum sem hefur mikinn tíma til að athafna sig og setur hann örugglega með hægri í hægra hornið. Avöru lokamínútur bíða.73. mín
Fylkir hafa verið miklir klaufar í þessum leik. Nú sparka þeir boltanum óvart í hvorn annan og Völsungur vinnur innkast.
68. mín
Fyrirgjöf inn í teig þar sem Nikulás er óvaldaður en skallinn framhjá markinu.
67. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtTómas Bjarni Baldursson
65. mín
Fylkir með köll eftir víti eftir að boltinn berst í hönd Mbye innan teigs. Höndin upp við líkama og ekkert dæmt.
64. mín
Illa farið með góða stöðu. Heimamenn vinna boltann og eru komnir í 2 á 1 en skiptingin yfir of aftarlega og skyndisóknin rennur í innkast.
61. mín
Gult spjald
Aron Snær Guðbjörnsson
Mér sýndist þetta vera Aron sem fékk gult. Aron og Juan Guardia í baráttunni en Aron fór fullharkalega í Juan sem liggur eftir. Fylkismenn ósáttir en að mínu mati hárrétt.57. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
Heimir gerir fjórfalda breytingu
57. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtKári Sigfússon
57. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
57. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtDagur Traustason
54. mín
Sending inn í teiginn á Tómas sem kemst í frábæra stöðu en Arnór Breki með mikilvæga tæklingu áður en Tómas kemst í skotið.
52. mín
Elvar litlu frá því að tvöfalda
Tómas Bjarni með flotta sendingu inn fyrir á Elfar en skotið Ólafur ver í horn.
50. mín
Já seinni hálfleikurinn var ekki gamall þegar fyrsta markið datt inn. Nú geri ég ráð fyrir að leikurinn galoponist. Við þurftum á þessu að halda!
48. mín
Fylkismenn algjörir klaufar
Elfar Árni Aðalsteinsson
Mbye með góðan sprett inn í teiginn en missir þar boltann. Varnarmaður Fylkis reynir að hreinsa en hreinsar í annan Fylkismann og dettur inn fyrir á Elvar sem klárar snyrtilega fram hjá Ólafi. Gestirnir komnir yfir!46. mín
Boltinn rúllar á nýjan leik
45. mín
Hálfleikur
Engu bætt við
Twana flautar til hálfleiks í Árbænum. Þessi hálfleikur ekki merkilegur. Ég vona eftir meira fjöri í þeim síðari. Tökum okkur korter.
44. mín
Nær annað liði marki fyrir hálfleik?
40. mín
Fylkismenn halda betur í boltann en tapa oft boltanum klaufalega sem gefur gestinum séns.
32. mín
FÆRI
Gestirnir í hættulegri sókn sem endar með fyrirgjöf á Elvar Baldvins sem er óvaldaður á fjær. Hann tekur skotið í fyrsta en skotið tiltölulega beint á Ólaf.
27. mín
Arnar Pálmi fær sendinguna inn fyrir en Bjarki Steinsen nær mikilvægri tæklingu og stoppar sóknina. Þarna var tækifæri.
21. mín
Máni með heiðarlega tilraun í fjærhornið en boltinn framhjá samskeytunum. Þarna mátti ekki miklu muna.
20. mín
Fylkir fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
17. mín
Það hefur lítið verið að frétta síðustu mínútur. Bæði lið missa boltann klaufalega og leikurinn heilt yfir jafn.
11. mín
Völsungar leysa vel úr þröngri stöðu á eigin vallarhelmingi og komast í stöðu en fyrirgjöfin ónákvæm og sóknin rennur út í sandinn.
8. mín
Góð sókn heimamanna sem endar með fínasta skoti frá Degi en Victor ver mjög vel í horn. Það kom ekkert merkilegt úr því.
7. mín
InnDagbjartur Búi Davíðsson
ÚtTómas Bjarni Baldursson
5. mín
Birkir Eyþórsson í fínni stöðu og kemur boltanum út í teiginn á Mána sem tekur of stóra snertingu og nær ekki að koma sér almennilega í skotið.
3. mín
Mbye reynir fyrirgjöfina en boltinn beint á Ólaf í markinu sem handsamar boltann.
1. mín
Máni Austmann sparkar þessu af stað
Fylkir byrjar með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin dottin inn
Tæpar 10 mínútur í upphafsflautið og allt er að verða klárt.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Fylkismenn sóttu 1-0 til Húsavíkur í fimmtu umferð deildarinnar. Guðmundur Tyrfingsson skoraði þar sigurmarkið úr vítaspyrnu.
Sjáðu það helsta úr leiknum
Sjáðu það helsta úr leiknum
Fyrir leik
Spámaðurinn
Jón Gísli Eyland leikmaður ÍA spáir öruggum 4-0 heimasigri í kvöld með mörkum úr öllum áttum.
"Fylkismenn mæta brjálaðir eftir tap í síðustu umferð og munu vinna öruggan sigur, mörkin koma úr óvæntri átt því Hlynur Sævar skorar tvö með skalla bæði eftir horn og Guðfinnur Þór skorar tvö bæði úr langskoti fyrir utan teig."
"Fylkismenn mæta brjálaðir eftir tap í síðustu umferð og munu vinna öruggan sigur, mörkin koma úr óvæntri átt því Hlynur Sævar skorar tvö með skalla bæði eftir horn og Guðfinnur Þór skorar tvö bæði úr langskoti fyrir utan teig."
Fyrir leik
Hungraðir Völsungar
Völsungar hafa rólega náð að safna stigum á töfluna í undanförnum leikjum. Í síðustu umferð unnu þeir gríðarlega dýrmætan 2-0 sigur á Grindavík. Þeir setja því pressu á liðin fyrir ofan sig og vilja líklegast helst af öllu losna úr fallsæti. Þeir sitja í 11. sæti deildarinnar með 11 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.


Fyrir leik
Vængbrotnir Fylkismenn
Undanfarin vika er vika sem Fylkismenn vilja líklegast gleyma. Eins og flestum er ljóst er það Afturelding sem leikur til úrslita Mjólkurbikarsins eftir sigur á Fylkismönnum í vítaspyrnukeppni hér í Árbænum. Fylkir náði ekki að svara fyrir svekkelsið gegn fallbaráttuliði ÍR en leikurinn endaði 2-0 fyrir Breiðhyltinga. Fylkir situr þrátt fyrir það í 3. sæti deildarinnar með 30 stig, einungis einu stigi frá toppnum og eru í góðri stöðu hvað umspilið varðar.


Fyrir leik
Dómarateymið
Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í kvöld. Honum til halds og trausts verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Mikael Ívan Axelsson. Dómaraeftirlitsmaðurinnkvöldsins er hann Ásgrímur Helgi Einarsson.


Fyrir leik
16. umferðin
Leikurinn er þriðja viðureign 16. umferðar en tveir aðrir leikir hefjast seinna í kvöld.
Hér er 16. umferðin eins og hún leggur sig.

14. júlí
HK 5-1 ÍR
15. júlí
Ægir 0-1 Njarðvík
16. júlí
Fylkir - Völsungur 18:00
Grindavík - Leiknir 19:15
Þróttur - Afturelding 19:45
3. ágúst
Vestri - Grótta 14:00
Hér er 16. umferðin eins og hún leggur sig.

14. júlí
HK 5-1 ÍR
15. júlí
Ægir 0-1 Njarðvík
16. júlí
Fylkir - Völsungur 18:00
Grindavík - Leiknir 19:15
Þróttur - Afturelding 19:45
3. ágúst
Vestri - Grótta 14:00
Fyrir leik
Árbærinn heilsar
Gott kvöld lesendur góðir og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá tekk-vellinum. Fylkir og Völsungur munu hér eigast við í 16. umferð Lengjudeildarinnar.





