SKÝRSLAN: Dramatík á Hásteinsvelli
Hvað réði úrslitum?
FH konur geta verið mjög svekktar að hafa klárað leikinn muni fyrr. 0-2 yfir og fengu svo sannarlega tækifæri til að gera út um leikinn. Það er oft þannig í fótbolta að ef þú nýtur ekki færin þín þá færðu það í bakið og Eyjakonur gengu á lagið í seinni hálfleik og skoruðu tvö góð mörk.
Bestu leikmenn
1. Ingibjörg Magnúsdóttir
Hún er svo góð í fótbolta. Virðist hafa svo lítið fyrir því sem hún gerir á vellinum en er samt alveg með þetta. Skorar frábært mark sem kemur FH í 2-0. Var líka dugleg að koma samherjum sínum í færi og vinnur líka vel varnarlega.
2. Allison Grace Lowrey
Allison kemur inn á 58. mínútu leiksins og breytir leiknum. Kom með svo mikinn kraft inn í ÍBV liðið. Sóknarleikurinn breytist og þær náðu að ógna meira á bakvið vörnina. Hún skorar svo auðvitað jöfnunarmarkið.
Atvikið
Gæti nefnt svo mörg frábær færi sem FH konur fengu til að gera út um leikinn. Ætla að nefna færið sem Nia fékk á 85. mínútu leiksins, ein gegn Guðnýju í marki ÍBV, sem hefði komið FH í 1-3 en hitti boltann illa.
Hvað þýða úrslitin?
FH heldur á toppsætinu á markatölu og eru með 30 stig líkt og Breiðablik. ÍBV sitja í fjórða sæti og eru með 21 stig.
Vondur dagur
Erfitt að segja en sóknarmenn FH áttu ekkert sérstakan dag fyrir framan markið fyrir utan Ingibjörgu. Nia og Ída fengu báðar afbragsfæri til að gera út um leikinn.
Dómarinn - 7
Fínn leikur hjá Elíasi Inga Árnasyni. Lítið um vafaatriði og var með góða stjórn á leiknum.



