Fotbolti.net
Besta deildin
Helgi Inguson
Besta kvenna
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
4 - 1
Valur
Valur
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir 33'1 - 01 - 149' Margrét Brynja KristinsdóttirAlda Ólafsdóttir 52'2 - 1Katrín S. Vilhjálmsdóttir 54'3 - 1Taylor Marie Hamlett 63'4 - 1
Dómari: Reynir Ingi Finnsson

SKÝRSLAN: Sjóðheitir Framarar rúlluðu yfir Val á tíu mínútna kafla

Hvað réði úrslitum?

Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik. Valskonur voru kraftmiklar og náðu að jafna metin í byrjun seinni hálfleiks. Heimakonur voru hins vegar fljótar að svara fyrir sig og gengu á lagið. Þrjú mörk á tíu mínútum og það vantaði allt sjálfstraust í gestina eftir það.

Bestu leikmenn

1. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir (Fram)

Það var unun að horfa á Söru spila í kvöld. Þvílík gæði og mýkt í henni. Hún skorar fyrsta mark leiksins og það skein af henni sjálfstraustið eftir það. Hikaði ekki við að taka menn á og skjóta fyrir utan teig.

2. Taylor Marie Hamlett (Fram)

Taylor er Frömurum ótrúlega mikilvæg. Mjög kraftmikill leikmaður sem heldur vel í boltann. Hún skoraði í dag og var sífellt ógnandi. Mig langar líka að minnast á Margréti Brynju í Valsliðinu sem var frábær í fyrri hálfleik og skoraði mark liðsins.

Atvikið

2-1 mark Framara var ákveðinn vendipunktur í leiknum. Valskonur voru slegnar útaf laginu eftir það og leyfðu heimakonum að keyra yfir sig.

Hvað þýða úrslitin?

Fram er komið upp í 6. sæti deildarinnar og jafna Grindavík/Njarðvík að stigum í 5. sætinu. Nú er liðið fjórum stigum frá fallsæti. Valur vermir botnsæti deildarinnar og er tveimur stigum frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Sjálfstraust Valsliðsins. Liðið hafði átt góðan leik og jafnaði leikinn verðskuldað. Þá tók við hrikalegur kafli sem erfitt er að útskýra. Allt liðið koðnaði og ekki hægt að velja neinn sérstakan leikmann sem var lélegur.

Dómarinn - 5

Þetta var skrítinn leikur og erfitt að gefa Reyni einkunn. Mér fannst spurning um hvort Marie hefði átt að vítaspyrnu í fyrri hálfleik en annars engin stór ákvörðun sem Reynir þurfti að taka. Það var mikið um gul spjöld enda mikil barátta inn á vellinum og hann hefði getað haft betri stjórn á leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.