Leik lokið!
90. mín
Dæminu snúið við og brot dæmt á Svein Margeir.
Síðasti möguleiki Víkinga fauk þarna.
+6 Fjandinn
Dæminu snúið við og brot dæmt á Svein Margeir.
Síðasti möguleiki Víkinga fauk þarna.
90. mín
+4
Helgi Guðjónsson
Fyrir sinn þátt í veseni eftir atvikið.90. mín
+4
Kings Kangwa
Mótmæli90. mín
+4
VAR er að skoða þetta
90. mín
+3 VÍKINGAR ERU AÐ FÁ VÍTASPYRNU!
Sveinn Margeir fyrstur á lausan bolta í teignum og á honum er brotið að mati dómara!
90. mín
Uppbótartíminn er alls fjórar mínútur
88. mín
Aukaspyrna frá Gylfa inn á teiginn, Sveinn Gísli rís hæst en hittir ekki á markið.
86. mín
Fangbrögð á miðjum vellinum
Gult spjald
Igor Zlatanovic
Fangbrögð á miðjum vellinum
82. mín
Þriðja markið?
Ahmad sleppur einn innfyrir og klárar vel fram hjá Aroni. Klár rangstaða á myndum og er dæmd en er samt skoðað.
VAR staðfestir dóminn á vellinum
VAR staðfestir dóminn á vellinum
80. mín
Fær boltann vinstra megin í teignum, leikur inn og fær Gunnar á rassinn. Setur boltann svo á nærhornið óverjandi fyrir Aron.
MARK!
Amir Ganah (stoðsending: Kings Kangwa)
Fær boltann vinstra megin í teignum, leikur inn og fær Gunnar á rassinn. Setur boltann svo á nærhornið óverjandi fyrir Aron.
76. mín
Sveinn Gísli fer í bakvörðinn og Helgi stígur upp, Daði og Viktor inn á miðjuna
75. mín
InnDaði Berg Jónsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
75. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtAron Elís Þrándarson (f)
75. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtDaníel Hafsteinsson
75. mín
InnOfir Davidzada
ÚtMatan Baltaxa
75. mín
InnAmir Ganah
ÚtJavon East
73. mín
Hapoel að taka öll völd
Kangwa aleinn í teignum en skýtur yfir markið úr úrvalsfæri.
Vikingar þurfa að finna orku og það strax.
Úff
Hapoel að taka öll völd
Kangwa aleinn í teignum en skýtur yfir markið úr úrvalsfæri.
Vikingar þurfa að finna orku og það strax.
71. mín
Kings Kangwa með gott hlaup af miðjunni beint í hjartað og nær skoti en setur boltann framhjá.,
69. mín
Gult spjald
Eliel Peretz
Ljótt brot á Valdimar sem lendir illa.65. mín
Fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn. Ahmad á markteigslínu nær góðum skalla sem Aron ræður ekki við.
Allt jafnt í einvíginu!
Zahi Ahmad
Fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn. Ahmad á markteigslínu nær góðum skalla sem Aron ræður ekki við.
64. mín
Javon East í hörkufæri í teignum úti til hægri eftir góða sókn en Aron ver
63. mín
Gult spjald
Daníel Hafsteinsson
Teikar Kangwa61. mín
Gult spjald
Aron Snær Friðriksson
Fær gult fyrir tafir að mati dómara leiksins.58. mín
Gult spjald
Lucas Ventura
Fer aftan í Valdimar í skyndisókn og uppsker réttilega gult58. mín
InnEliel Peretz
ÚtYehoshuha
56. mín
Ventura í dauðafæri nánast á vítapunkti en skóflar boltanum vel yfir markið.
56. mín
Aukaspyrna á álitlegum stað.
Gult spjald
Gunnar Vatnhamar
Full ágengur að mati dómara leiksins.Aukaspyrna á álitlegum stað.
55. mín
Vandræði í teig Víkinga eftir fyrirgjöf frá Kangwa, boltinn skoppar manna á milli en er að endingu hreinsað frá.
52. mín
Leikurinn stopp vegna höfuðmeiðsla, Aron Elís og Rotman skalla saman og finna báðir fyrir því.
50. mín
Helgi með frábæra tæklingu í teignum eftir lúmska sendingu inn á teiginn.
Flaggið fer þó líka á loft svo það hefði ekki talið.
Flaggið fer þó líka á loft svo það hefði ekki talið.
49. mín
Fyrsta hornspyrna hálfleiksins er heimamanna.
46. mín
Hapoel byrjar á snöggri sókn. Boltinn fyrir markið á Kings sem fær boltann augljóslega í höndina og aukaspyrna réttilega dæmd.
46. mín
Hapoel liðar sparka okkur af stað á ný.
Síðari hálfleikur hafinn
Hapoel liðar sparka okkur af stað á ný.
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks

45. mín
Flautað til hálfleiks í Ungverjalandi. Staðan markalaus og satt að segja þó ég sé nú ekki hlutlaus þá hafa Víkingar einfaldlega verið betri.
Vonumst eftir því sama í síðari hálfleik
Vonumst eftir því sama í síðari hálfleik
45. mín
Uppbótartími fyrri hálfleiks er að lágmarki fjórar mínútur.
44. mín
Hapoel að fá aukaspyrnu á góðum stað til fyrirgjafar úti til hægri.
Gunnar Vatnhamar brotlegur.
Gunnar Vatnhamar brotlegur.
38. mín
Karl Friðleifur með tæpan skalla til baka á Aron Snæ, sóknarmaður við það að komast í milli en Ekroth og Aron bjarga þessu í sameiningu.
36. mín
InnItay Rotman
ÚtDjibril Diop
36. mín
Igor Zlatanovic stígur undir Gunnar Vatnhamar eftir hornið og lendir Gunnar illa. Aukaspyrna dæmd en það látið duga.
34. mín
Hapoel fær sína fyrstu hornspyrnu í leiknum
Þeir eru sömuleiðis að undirbúa skiptingu.
Þeir eru sömuleiðis að undirbúa skiptingu.
33. mín
Sveinn Margeir í baráttu í teignum eftir langt útspark. Vitor aðeins að knúsa hann en ekki nóg
30. mín
Gylfi með spyrnuna inn á teiginn en heimamenn koma boltanum út fyrir.
Víkingar fá horn í kjölfarið. Þeirra fjórða í leiknum
Víkingar fá horn í kjölfarið. Þeirra fjórða í leiknum
29. mín
Stígur stígur Ventura út á miðjum vellinum og sækir góða aukaspyrnu fyrir Víking.
22. mín
Gylfi Þór með klobba á miðjum vellinum og Víkingar 4 á 1. Sending Gylfa við vítateiginn léleg en Sveinn Margeir vinnur boltann sem fer af varnarmanni hárfínt framhjá.,
DAUÐAFÆRI VÍKINGA!
Gylfi Þór með klobba á miðjum vellinum og Víkingar 4 á 1. Sending Gylfa við vítateiginn léleg en Sveinn Margeir vinnur boltann sem fer af varnarmanni hárfínt framhjá.,
21. mín
Valdimar Þór í góðri stöðu úti til vinstri með tvo inn á teignum. Setur boltann yfir á fjærstöng en of mikið púður og boltinn afturfyrir.
18. mín
Færi!
Kangwa í tómu tjóni í eigin teig undir pressu frá Daníel, boltinn á Aron Elís sem nær skoti sem Ofir slær í horn.
16. mín
Áhyggjuefni að Víkingar hafa þurft að nýta 2 af 3 stoppum til skiptinga á fyrsta korteri leiksins.
15. mín
InnStígur Diljan Þórðarson
ÚtÓskar Borgþórsson
Vitor búinn að taka tvo út hjá Víkingum það sem af er. Datt á Óskar áðan og klemmdi á honum ökklann.
Óskar getur ekki haldið áfram.
Óskar getur ekki haldið áfram.
15. mín
Kings Kangwa hársbreidd frá því sleppa innfyrir en missir boltann of langt frá sér og fer afturfyrir.
11. mín
Lúmskur bolti fyrir markið frá Javon East sem Aron Snær sópar upp.
9. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtTarik Ibrahimagic
8. mín
Tarik fer af velli á börum. Sveinn Margeir að gera sig til í að koma inn í hans stað.
6. mín
Tarik fer niður eftir samstuð á vellinum og virðist þó nokkuð þjáður. Pressaði vel á Vitor fyrirliða Hapoel sem fylgir vel á eftir og stígur á fótinn á Tarik sem hefur lokið leik,
Því miður lítur þetta út eins og alvarleg meiðsli en Tarik rís þó á fætur.
Því miður lítur þetta út eins og alvarleg meiðsli en Tarik rís þó á fætur.
5. mín
Hapoelliðar koma sér inn á teiginn vinstra megin, boltinn fyrir markið en Ekroth mættur og hreinsar frá.
1. mín
Helgi Guðjóns sækir horn strax á fyrstu mínútu. Hafsentar Víkings rölta inn á teiginn.
1. mín
Þeta er farið af stað í Ungverjalandi. Það eru Víkingar sem hefja hér leik
Fyrir leik
Það er góð stemning á pöllunum upphitun búin og næst... GAME TIME! TAKK ?????? pic.twitter.com/EdPG1f09nj
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) July 29, 2026
Fyrir leik
Nikolaj Hansen er í fullum skrúða hjá Víkingum í dag í búning og skóm en hefur engan þátt tekið í upphitun með liðinu. Hann hefur ekki getað æft undanfarna daga og verður að teljast ólíklegt að hann sé leikfær.
Niko ólíklegur í að taka þátt í dag
Nikolaj Hansen er í fullum skrúða hjá Víkingum í dag í búning og skóm en hefur engan þátt tekið í upphitun með liðinu. Hann hefur ekki getað æft undanfarna daga og verður að teljast ólíklegt að hann sé leikfær.
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings

Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt í hús
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá fyrri leiknum.
Nikolaj Hansen skoraði bæði mörk Víkings fyrir viku síðan en hann er á bekknum vegna ökklameiðsla. Hann kom ekki við sögu í 5-1 sigri Víkings gegn Keflavík síðastliðinn föstudag.
Aron Elís Þrándarson leiðir línuna í hans fjarveru. Tarik Ibrahimagic kemur þá inn í liðið og verður á miðjunni.

Stuðningsmenn Víkings eru vanir að fjölmenna á Ölver í Glæsibæ þegar lið þeirra leikur utan landsteinana og þessi leikur verður engin undantekning. Það verður væntanlega líf og fjör á staðnum þar sem einnig verður upphitun fyrir toppslag Þróttar og Aftureldingar í Lengjudeildinni sem fram fer 19:45 í kvöld.
Leikurinn sýndur á Ölveri

Dómarinn
Dómarateymi leiksins kemur frá Bosníu en aðaldómari verður Antoni Bandic sem hefur verið að klifra upp metorðastigann hjá UEFA. Bandic hefur áður dæmt leik hjá íslenskum liðum og dæmdi meðal annars 2-2 jafnteflisleik Íslands og Wales í Þjóðadeildinni 2024.
VAR dómari leiksins er hinsvegar ítalskur, Gianluca Aureliano.

VAR dómari leiksins er hinsvegar ítalskur, Gianluca Aureliano.

Fyrir leik
Líkt og gegn Györ fyrir hálfum mánuði er Fótbolti.net að sjálfsögðu með mann á staðnum. Ívar Björgvinsson fylgdi Víkingum til Ungverjalands að þessu sinni og hefur rætt við menn undanfarna daga og má sjá afrakstur þess hér að neðan.
Fótbolti.net á ferð og flugi
Líkt og gegn Györ fyrir hálfum mánuði er Fótbolti.net að sjálfsögðu með mann á staðnum. Ívar Björgvinsson fylgdi Víkingum til Ungverjalands að þessu sinni og hefur rætt við menn undanfarna daga og má sjá afrakstur þess hér að neðan.
Fyrir leik
Vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs fá lið frá Ísrael ekki að leika evrópuleiki sína í heimalandinu. Leikurinn fer því fram í Ungverjalandi sem ætti að reynast Víkingum ágætt enda farnir að venjast landinu,
Haladás Stadium er leikvangur kvöldsins. Völlurinn er frekar nýlegur og opnaður árið 2017 og tekur alls 8.903 áhorfendur í sæti. Ég ætla að leyfa mér að efast um að það verði uppselt þó á leik kvöldsins.
Leikurinn fer fram í Ungverjalandi

Vegferð EuroVikes heldur áfram
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Hapoel Be'er Sheva og Víkings í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Um er að ræða síðari leik liðanna en Víkingur fór með 2-1 sigur af hólmi á heimavelli fyrir rúmri viku og er því í fínum möguleika að tryggja sig áfram í 3. umferð forkeppninar í dag.

Um er að ræða síðari leik liðanna en Víkingur fór með 2-1 sigur af hólmi á heimavelli fyrir rúmri viku og er því í fínum möguleika að tryggja sig áfram í 3. umferð forkeppninar í dag.

Þannig fór um sjóferð þá. Víkingar úr leik í Meistaradeildinni og einvígi gegn Thun frá Sviss bíður í Evrópudeildinni.