SKÝRSLAN: HK sigrar og blandar sér í toppbaráttu
Hvað réði úrslitum?
HK konur spiluðu heilt yfir betur í þessum leik, Selfoss átti góða kafla inn á milli en áræðni HK kvenna gaf þeim sigurinn í dag.
Bestu leikmenn
1. Cally Queen Togiai (HK)
Verð að gefa Cally þetta, skorar tvö glæsileg mörk og var sífellt ógnandi í vítateig gestanna.
2. Karlotta Björk Andradóttir (HK)
Karlotta var virkilega góð í dag, var allt í öllu og skilaði sínu dagsverki vel.
Atvikið
Markið hjá Thelmu Sól, hnitmiðað skot fyrir utan teig sem fer beint yfir Hugrúnu í markinu.
Hvað þýða úrslitin?
HK fara í 3.sæti með 20 stig og blandar sér í baráttuna um sæti í deild þeirra bestu, en Selfoss er áfram í 6.sæti með 16 stig.
Vondur dagur
Fannst engin ein eiga vondan dag í leiknum, allar frekar solid. Ef ég þyrfti að setja þetta á eitthvern leikmann væri það líklegast Hugrún í marki Selfoss, fær á sig 3 mörk sem væri mögulega hægt að koma í veg fyrir. Hún átti fínar vörslur samt sem áður inn á milli.
Dómarinn - 8
Tómas og félagar áttu góðan dag á flautunni í dag, engin vafaatriði sem áttu sér stað.


