Fotbolti.net
Sigurjón Árni Torfason
Sigurjón Árni Torfason
Lengjudeild karla
Stakkavíkurvöllur
Það er alveg vindur hér suður með sjó!
Grindavík
Grindavík
1 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Rúnar Ingi Eysteinsson 68'1 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Langþráður sigur Grindavíkur

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og hefðu hæglega geta skorað í byrjun leiks, en inn vildi boltinn ekki. Grindvíkingar tóku síðan öll völd á vellinum eftir fyrstu 20 mínúturnar og hefðu hæglega skorað fleiri mörk, en Ólafur Íshólm í marki Leiknis var í bana stuði í dag.

Bestu leikmenn

1. Ólafur Íshólm

Hann var gjörsamlega stórbrotinn í dag og kom í veg fyrir að Grindavík myndu vinna þennan leik stærra. Rafael Victor komast í 3 dauðafæri en alltaf var Ólafur mættur.

2. Gunnleifur Orri Gunnleifsson

Gunnleifur var líka fáránlega góður lagði upp sigurmarkið og var alltaf vesen fyrir varnarmenn Leiknis.

Atvikið

Mark Grindavíkur því þeir höfðu ekki skorað á heimavelli síðan í Maí gegn Aftureldingu í 3-1 tapi

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík eru komnir í 9. sætið og ÍR komnir í 10. sæti en eins og staðan er núna er Grindavík komnir aðeins úr fallpakkanum með 17 stig 6 stigum á undan Völsungi sem eru í fallsæti.

Vondur dagur

Ég ætla gefa sóknarleik Leikni þetta fengu fullt af ágætis sénsum en nýttu það ekki og þá sérstaklega fyrstu 20 mínúturnar

Dómarinn - 8

Gunnar Oddur var frábær í dag ekkert útá hann að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.