SKÝRSLAN: Selfoss seigla eða heppnir með lélega dómgæslu
Hvað réði úrslitum?
Seigla í Selfoss liðinu, en Dalvíkur liðið vill eflaust meina að léleg lína dómarans hafi ráðið úrslitum hér á Selfossi í kvöld
Bestu leikmenn
1. Aron Lucas Vokes
Tvö frábær mörk sem reyndust mikilvæg, sérstaklega þegar þau komu á eiginlega eina tímapunkti þar sem Selfoss gat spilað sókn.
2. Filip Ivan Sabatti
Glænýr í marki liðsins en það er ekki að sjá, hann er stór partur af því að Selfoss hélt þessum þremur stigum.
Atvikið
Mörkin í kvöld voru FRÁBÆR en atvikið fer eflaust til þessara vítadóma sem ekkert varð úr. Mögulega eitthvað sem Dalvík/Reynir hefði átt að fá fyrir sinn snúð þar.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss er að koma sér vel fyrir í 2.sæti deildarinnar, en þeir erum með fjögur stig á 3.sætið en þrjú stig eru í topplið Hauka. Dalvík/Reynir þarf að bíta í það súra epli að fá ekkert fyrir sterka frammistöðu sína og sérstaklega í seinni. Eru í 7.sæti eftir 15.umferð með 20stig.
Vondur dagur
Áki Sölvason er alvöru markaskorari fyrir Dalvík/Reynir að það fór mjög lítið fyrir honum í kvöld. Eflaust ekki sáttur með sinn leik og var tekinn útaf þegar korter var eftir.
Dómarinn - 5
Erfitt að meta en við fyrstu sýn á leikinn var dómarinn bara fínn, en línan var brösótt á tímum, held að gult spjald eftir 1.mín veldur því svolítið. Dalvíkur liðið átti einhver þrjú móment þar sem þeirra maður fellur í teignum. Þeir eru mjög ósáttir út í dómarteymið í kvöld. Væri fróðlegt að líta betur í þetta.


