SKÝRSLAN: Fylkir aftur á sigurbraut
Hvað réði úrslitum?
Það voru gæðin sem Fylkir sýndi í seinni hálfleik. Leikurinn opnaðist mikið í seinni hálfleik en Fylkir náði tökum á leiknum eftir fjórfalda skiptingu frá Heimi.
Bestu leikmenn
1. Theodór Ingi Óskarsson
Theodór kemur inn af bekknum og setur 2 mörk. Þau höfðu getað verið fleiri svo innkoma hans var gífurlega sterk og gaf þeim mikið.
2. Hlynur Sævar Jónsson
Fyrirliðinn með mark og var öflugur í vörninni. Verð líka að gefa honum og Fylki kredit fyrir það að hafa ekki gefist upp því þeir voru heilt yfir slakir framan af áður en allt small.
Atvikið
Fjórfalda skiptingin hjá Heimi á 57. mínútu. Framan af sáu Fylkismenn ekki til sólar en eftir þessa skiptingu breyttist leikurinn.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir stekkur á topp deildarinnar í bili. Það gæti breyst eftir leik Þróttar og Aftureldingar í Laugardalnum. Völsungar eru enn í 11. sæti þar sem falldraugurinn hangir yfir þeim. Þeir eru eins og staðan er núna þremur stigum frá öruggu sæti en það gæti breyst eftir leik Grindavíkur og Leiknis.
Vondur dagur
Erfitt að klína þessu á einhvern einn leikmann svo ég verð að setja þetta á vörn Völsung sem brast síðustu 20 mínúturnar.
Dómarinn - 8
Heilt yfir vel dæmdur leikur en það er lítið sem ekkert sem ég get sett út á Twana.


