Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta kvenna
Hásteinsvöllur
Vindur á annað mark.
ÍBV
ÍBV
2 - 2
FH
FH
0 - 133' Hrönn Haraldsdóttir0 - 245' Ingibjörg MagnúsdóttirAndrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (sjm) 59'1 - 2Allison Grace Lowrey 93'2 - 2
Dómari: Elías Ingi Árnason
Leik lokið!
Dramatískt 2-2 jafntefli
Jafntefli í fjörugum leik. FH konur líklega svekktari með úrslitin sem hefðu getað fyrir löngu gert út um leikinn en frábær endurkoma hjá Eyjakonum.
ÍBV
93. mín
ÍBV JAFNAR!!!!

Allison Grace Lowrey (stoðsending: Viktorija Zaicikova)

Avery kemur með langan bolta inn á teiginn og Viktorija nær smá snertingu á boltann á Allison Lowrey sem setur boltann undir Aldísi í makrinu.

Allt jafnt! 2-2!
ÍBV
92. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtAllison Patricia Clark
92. mín
FH í færi
Ingibjörg með frábæran sprett upp hægri kantinn og setur boltann á Vigdísi Eddu en skot hennar fer rétt frma hjá markinu.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
88. mín
Unnur með skot en það er beint á Guðnýju.
88. mín
Nia setur boltann út á Unni sem tekur skotið fyrir utan teig en það er framhjá markinu.
FH
86. mín
InnVigdís Edda Friðriksdóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
FH
86. mín
Gult spjald

Mackenzie Elyze Smith

Togar í Rögnu Söru.
85. mín
NIA!!
Nia er komin ein gegn Guðnýju en Guðný ver frábærlega frá henni.
84. mín
LOWREY Í FÆRI!!!
Helena Hekla kemur með sendingu í gegn á Clark og hún á frábæra sendingu inn á teiginn. Aldís nær ekki til boltans svo hann dettur fyrir Lowrey en skallinn hennar er rétt framhjá.
81. mín
Vel gert hjá Lowrey. Fær boltann í gegn og kemst upp að endalínu og nær sendingu fyrir markið en Eyjakonur er seinar að skila sér inn í teiginn og til setja boltann í netið.
80. mín
INGIBJÖRG!!
Gerir frábærlega út vinstri megin, keyrir inn á teiginn gegn Avery og nær skotinu en það er rétt framhjá.
79. mín
Unnur með hættulega fyrirgjöf frá hægri en Jónína nær ekki að stýra skallanum á markið.
78. mín
Helena með aukaspyrnuna en hún er allof laus og utarlega og FH koma boltanum í burtu.
FH
77. mín
Gult spjald

Jónína Linnet

ÍBV fær aukaspyrnu úti hægra megin. Olga tekin niður.
75. mín
Gott færi hjá FH
Unnur leggur boltann á Ingibjörgu inn á teignum en skot hennar fer hátt færi.
74. mín
Góð sókn hjá ÍBV. Lowrey kemur boltanum út á Olgu sem ætlar að setja boltann alla leið yfir í teignum en sendingin aðeins og löng fyrir Viktoriju.
70. mín
Frábærlega gert hjá Unni, keyrir upp hægri kantinn og kemur með boltann út á vítateigspunktinn en þar er engin úr FH. Færið rennur út í sandinn.
FH
68. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtHrönn Haraldsdóttir
FH
68. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
FH
68. mín
InnMackenzie Elyze Smith
ÚtHelena Maree Errington
66. mín
Clark fékk boltann vinstra megin frá Rögnu og ætlar að setja boltann á fjær á Olgu en sendingin er of löng.
64. mín
Deja með skot fyrir utan teig en það er yfir markið.
64. mín
Viktorija vinnur boltann á miðjum vallarhelmingi FH og ætlar að lauma boltanum inn á Olgu sem tók hlaupið frá vinstri en Aldís er aðeins á undan henni.
ÍBV
59. mín
ÍBV minnkar muninn!!

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (stoðsending: Allison Patricia Clark) (sjm)

Frábær sókn hjá ÍBV. Clark fékk boltann vinstra megin og kemur boltanum fyrir markið og Viktorija er í þessu en virðist sem svo að Andrea Rán setur boltann í eigið net.

1-2!!!
ÍBV
58. mín
InnAllison Grace Lowrey
ÚtÁgústa María Valtýsdóttir
58. mín
Fridrikka setur boltann í gegn á Clark en Aldís kemur út og handsamar boltann.
57. mín
Helena Maree með skot fyrir utan teig en Guðný ver frá henni.
56. mín
ÍDA í færi!!!
Ingibjörg með góðan bolta inn á markteig á Ídu sem nær snertingu í átt að marki en Guðný gerir vel gegn henni svo að hún skítur bara í hana.
55. mín
Frábærlega spilað hjá Hrönn og Ídu, taka einn tvær úti vinstra megin en sendingin frá Hrönn er of innarlega og Guðný grípur boltann.
52. mín
Avery með frábæran varnarleik gegn Ingibjörgu úti hægri megin og kemur boltanum í burtu.
51. mín
Ragna fær boltann frá Olgu í gegn en FH konur er fljótar til baka. Hún ætlar að stinga boltanum inn á Clark en er aðeins og lengi að koma með sendinguna. FH koma boltanum í burtu.
50. mín
Fínt spila hjá ÍBV sem endar á að Ágústa fær boltann inn á teignum en nær ekki að koma sér í skotfæri.
47. mín
Fridrikka með langa sendingu inn á teiginn en Ágústa nær ekki til boltans.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikur
0-2 í hálfleik
FH leiðir sanngjart með tveimur mörkum í hálfleik.
FH
45. mín
2-0!!

Ingibjörg Magnúsdóttir

Frábærlega gert hjá Ingibjörgu! Keyrir bara inn á teiginn frá miðjum vellinum og tekur eina snertingu til hliðar og setur boltann snyrtilega í netið.
45. mín
Avery gerir vel og kemur upp allan völlinn og setur boltann svo á Ágústu en sendingin hennar í gegn er slök og fer beint til Aldísar.
43. mín
Vel spilað hjá FH. Hrönn kemur boltanum á Ingibjörgu sem veður bara inn á teiginn og kemur með fyrirgjöf/skot sem Guðný nær að verja.

Stuttu seinna fékk Ída boltann inn á teignum og náði skotinu en Guðný ver frá henni.
42. mín
Helena Hekla með hættulega hornspyrnu en Aldís nær að blaka boltanum yfir.
38. mín
Stöngin!
Olga með frábæra hornspyrnu fyrir ÍBV á fjær á Rögnu Söru og hún skallar boltann í stöngina og FH hreinsa.
FH
36. mín
Gult spjald

Ingibjörg Magnúsdóttir

35. mín
Ingibjörg með stundusendingu inn á Hafrúnu en Guðný gerir vel og kemur út út markinu.
FH
33. mín
FH komnar yfir

Hrönn Haraldsdóttir (stoðsending: Hafrún Birna Helgadóttir)

Hafrún fékk boltann vinsta megin og kemur með sendingu inn á teiginn á fjær og Hrönn klárar örgglega í netið.
32. mín
Ída með skemmtilega sendingu í gegn á Birnu en Avery nær að koma boltanum í burtu.
ÍBV
29. mín
InnViktorija Zaicikova
ÚtSandra Voitane
28. mín
FH heldur boltanum og reynir að finna glufur en tekst frekar illa.
26. mín
Frekar lítið að frétta akkurat núna. Síðasta sendingin slök hjá báðum liðum.
25. mín
Ingibjörg reynir að lauma boltanum inn á Hafrúnu en sendingin er of löng og fer beint til Guðnýjar.
24. mín
Hafrún með fyrirgjöf inn á teiginn sem Fridrikka hreinar frá.
20. mín
Sandra kemur með langa sendingu fram á Allison en fyrsta snertingin svíkur hana og boltinn rennur til Aldísar.
18. mín
Ágústa með stungusendingu í gegn á Allison Clark en hún er alltof lengi að kveikja og Aldís er rétt á undan í boltann.
16. mín
Olga með hættulega fyrirgjöf inn á teiginn en Ágústa nær ekki til boltans.
15. mín
Andrea með hættulega hornspyrnu fyrir FH sem virtist vera á leiðinni inn en Guðný gerir vel og nær að slá boltann frá.
14. mín
Fridrikka brýtur á Ingibjörgu og FH fær aukaspyrnu a miðjum vallarhelmingi ÍBV.

Andrea með spyrnuna á Ingibjörgu og ÍBV hreinsar aftur fyrir.
FH
13. mín
Gult spjald

Hafrún Birna Helgadóttir

Kemur alltof seint í boltann.
12. mín
Hrönn með fyrirgjöf inn á teiginn en hún er of innarlega og Guðný grípur boltann.
10. mín
Vel gert hjá Ingibjörgu, vinnur boltann ofarlega á vellinum og kemst inn á teiginn. Kemur með sendinguna út á Birnu en hún hittir boltann ekki nægilega vel.
9. mín
Olga með skot af löngu færi en það fer langt fram hjá markinu.
9. mín
Anna Heiða reynir stungusendingu í gegn á Ingibjörgu en Avery nær að koma boltanum í burtu.
6. mín
Andrea með slaka sendingu á miðjunni sem Helena Hekla kemst inn í. Hún reynir að stinga boltanum inn á Ágústu en sendingin er allof föst.
4. mín
FH konur með boltann hérna fyrstu mínúturnar.
3. mín
FH í færi
Hafrún kemst upp að endalínu og kemur með hættulega sendingu fyrir markið en Eyjakonur ná að hreinsa. Góð sókn hjá FH.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað.

Heimakonur byrja leikinn!
Fyrir leik
Breyting hjá FH
Thelma Lóa meiddist fyrir leik og Hrönn Haraldsdóttir byrjar í hennar stað.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.