Fotbolti.net
Birgitta Hallgrímsdóttir
Lengjudeild kvenna
Kórinn
HK
HK
3 - 2
Selfoss
Selfoss
Cally Queen Togiai 24'1 - 0Thelma Sól Óðinsdóttir 45'2 - 02 - 166' Stevie Madonna ReynoldsCally Queen Togiai 68'3 - 13 - 275' Juliana Marie Paoletti
Dómari: Tómas Wolfgang Meyer
Leik lokið!
HK sigrar í kvöld eftir skemmtilegar lokamínútur.

Takk fyrir samfylgdina, skýrsla væntanleg innan skamms.
93. mín
Fyrirgjöf frá Védísi en skallinn beint á Kaylie í markinu.
HK
90. mín
InnÁstrós Birna Hólmsteinsdóttir
ÚtRagnhildur Sóley Jónasdóttir
90. mín
Selfoss vann aðra hornspyrnu og Juliana með skalla sem fer rétt yfir markið!
89. mín
SKOT!!
Védís með þrumuskot langt fyrir utan teig sem Kaylie á í vandræðum með og ver í horn.
85. mín
HK konur að spila vel fyrir utan vitateig Selfossar, endar með langskoti sem Hugrún ver í annarri tilraun.
83. mín
Bæði lið að gera mikið af feilum, eitthvað stress komið í leikmenn!
78. mín
Færi!!
WOW! Selfoss líklegri til að skora! eiga flotta sókn sem endar með skoti rétt framhjá!
Selfoss
75. mín
MAAAARK!

Juliana Marie Paoletti (stoðsending: Ásdís Erla Helgadóttir)

Virkilega vel spilað hjá gestunum, Ásdís Erla á sendingu inn á Juliönu sem klárar í markið!
Selfoss
74. mín
InnIsabella Arnarsdóttir
ÚtHildur Eva Bragadóttir
HK
71. mín
InnKatrín Ágústsdóttir
ÚtEydís Helgadóttir
70. mín
Dauðafæri!!
Darraðadans í teig Selfossar, boltinn endar hjá Ragnhildi sem á skot á markið en aftur hendir Eva Lind sér fyrir og bjargar marki!
Selfoss
68. mín
InnÁsdís Erla Helgadóttir
ÚtEmbla Dís Gunnarsdóttir
Selfoss
68. mín
InnSara Rún Auðunsdóttir
ÚtOlga Lind Gestsdóttir
HK
68. mín
MAAAARK!

Cally Queen Togiai

Heimakonur ekki lengi að svara fyrir sig! Cally með frábært mark sem átti held ég að vera fyrirgjöf!
Selfoss
66. mín
MAAAARK!

Stevie Madonna Reynolds

Sá ekki alveg hvað gerðist í aðdraganda marksins, en skotið á Stevie var í miðjum vítateig sláin inn!
Selfoss
64. mín
Gult spjald

Stevie Madonna Reynolds

Stevie brýtur harkalega á Ragnhildi á vallarhelming HK, verðskuldað spjald.
63. mín
Brotið á leikmanni Selfossar fyrir utan vítateig, Védís Ösp tekur spyrnuna sem fer í varnarvegginn!
61. mín
Enn og aftur eru HK konur að eiga fína sókn, Eydís vinnur boltann út á kanti og sendir á Cally sem sendir hann áfram á Ragnhildi, hún á fínt skot sem Eva Lind hendir sér fyrir.
57. mín
HK liðið einum fleiri í mínútu núna þar sem stoppa þurfti leikinn því Embla Dís fékk aðhlynningu.
57. mín
Selfoss í fínni sókn, pressa HK vörnina vel en skotið beint á Kaylie.
54. mín
Færiii!
HK konur með fína sókn, Eydís gerir vel úti á kanti, á flotta fyrirgjöf sem Cally lætur fara en þar var engin sóknarmaður, óheppnar þarna!
50. mín
Seinni hálfleikurinn byrjar frekar hægt, bæði lið eitthvað feiminn við að halda í boltann. HK eiga þó fína sókn þar sem Eydís fær boltann á kantinum og kemur með fínan bolta fyrir sem Cally nær ekki til!
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn!
Heimakonur byrja seinni hálfleikinn.
Selfoss
46. mín
InnSólrún Njarðardóttir
ÚtAuður Helga Halldórsdóttir
Gestirnir gera eina breytingu í háfleik.
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur í Kórnum! HK hefur haft yfirhöndina í seinnihluta fyrri hálfleiks!
HK
45. mín
SKOT

Thelma Sól Óðinsdóttir

Thelma Sól með frábært skot langt fyrir utan teig sem fer yfir Hugrúnu í markinu! Virkilega vel gert!
43. mín
Varsla!!
Cally gerir vel inní teig og á fínt sko sem Hugrún ver frábærlega!
41. mín
HK vinnur hornspyrnu eftir aðra lélega sendingu í vörninni, Cally með skallann yfir markið!
40. mín
Úffff, Juliana með lélega sendingu til baka á Hugrúnu sem Cally er nálægt að komast inní, nær að pressa markmanninn og boltinn fer í markspyrnu. Selfoss stálheppnar þarna!
37. mín
Mikill darraðadans í teig HK kvenna sem endar með lausu skoti framhjá markinu.
34. mín
Þarna hefði átt að beita hagnaðarreglunni, brotið er á Stevie sem nær boltanum og er nálægt að komst 1v1 en Tómas dæmir aukaspyrnu!

Fín fyrirgjöf inní úr spyrnunni en Eva Lind á skotið yfir.
32. mín
STÖNGIN
Klara Mist aftur með flotta sendingu í gegn á Karlottu sem gerir vel og á skot í stöngina! Óheppin þarna!
29. mín
Þorbjörg með skot fyrir utan teig eftir góðan undirbúning Ragnhildar, en skotið er rétt framhjá!
26. mín
HK konur eru að spila aðeins betur þessa stundina, vinna hér hornspyrnu.

Þorbjörg nær fínum skalla en beint í hendurnar á Hugrúnu!
HK
24. mín
MAAAAAARK!

Cally Queen Togiai

Cally fær langa sendingu inn fyrir vörn Selfossar og klára vel í þröngu færi!
22. mín
Flott fyrirgjöf frá vinstri kanti, Cally nær skallanum en auðvelt fyrir Hugrúnu í markinu.
17. mín
Olga Lind með gott hlaup aftur fyrir varnalínu HK, kemur með góða fyrirgjöf en Stevie nær ekki til knattarins.
15. mín
Klara Mist með frábæran bolta inná Cally sem vinnur hornspyrnu.

Hornspyrnan endar með skoti langt yfir markið!
14. mín
Lítið að frétta þessar mínúturnar! Olga Lind brýtur af sér á miðjum velli.
8. mín
Stevie með góða pressu á varnarlínu HK og vinnur boltann, en nær ekki að skapa neitt hættulegt, Juliana fær í kjölfar skot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá!
6. mín
Auður Helga með laflaust skot fyrir utan teig.

Leikurinn byrjar frekar hægt hérna og bæði lið að koma sér í takt við leikinn!
4. mín
Úff, þarna hefði HK geta fengið víti, Cally var komin framfyrir varnamann Selfossar og fellur en dómarateymið vissir í sinni ákvörðun.
2. mín
Kristjána Ása með flotta fyrirgjöf frá hægri kantinum, engin HK kona inní teig.
1. mín
Leikur hafinn
Leikur hafinn
Gestirnir frá Selfossi sparka þessu í gang!
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl
Liðin ganga hérna inn á völlinn, þetta fer að bresta á!

Fyrir leik
Byrjunarlið Selfoss
Jonathan Glenn gerir líka breytingar á sínu liði en þær Hugrún, Eva Lind og Auður Helga koma inn fyrir þær Sophie, Isabellu og Emblu Katrínu.

90. Hugrún Svala Guðjónsdóttir (m)
3. Embla Dís Gunnarsdóttir
4. Hildur Eva Bragadóttir
5. Juliana Marie Paoletti
6. Brynja Líf Jónsdóttir (f)
16. Védís Ösp Einarsdóttir
18. Magdalena Anna Reimus
19. Eva Lind Elíasdóttir
23. Stevie Madonna Reynolds
25. Auður Helga Halldórsdóttir
29. Olga Lind Gestsdóttir

Fyrir leik
Byrjunarlið HK
Andri Hjörvar þjálfari HK gerir 3 breytingar á sínu liði frá síðasta leik, inn koma þær Karlotta Björk, Þorbjörg Rún og Eydís fyrir þær Hentríettu, Ísabel og Ölmu.

1. Kaylie Erin Bierman (m)
3. Anja Ísis Brown
5. Valgerður Lilja Arnarsdóttir (f)
8. Karlotta Björk Andradóttir
16. Cally Queen Togiai
19. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir
21. Þorbjörg Rún Emilsdóttir
22. Kristjana Ása Þórðardóttir
28. Eydís Helgadóttir
29. Thelma Sól Óðinsdóttir
33. Klara Mist Karlsdóttir
Fyrir leik
Dómarateymið
Tómas Wolfgang Meyer er á flautunni í dag, honum til aðstoðar eru Björn Ingvar Guðbergsson og Hrannar Björn Arnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Selfoss
Selfoss stelpurnar eru í 6.sæti með 16 stig, jafnmörg stig og Keflavík í sætinu fyrir ofan, aðeins 2 stig skilja liðin í 6. og 3. sæti að, með sigrinum í kvöld getur Selfoss lyft sér upp í 3.sæti.

Selfoss var spáð 8.sæti í deildinni, þær hafa heldur betur sýnt að þær geta betur en það. Þær hafa sigrað 5 leiki, tapað 4 og gert 1 jafntefli það sem af er sumri.
Mynd: Hrefna Morthens

Fyrir leik
HK
Heimakonur í HK sitja í 4.sæti með 17 stig einu stigi á eftir Haukum í 3.sæti, en HK stelpurnar unnu Hauka í síðustu umferð 2-0, fyrir það hafa þær tapað einum og gert eitt jafntefli.

HK var spáð fyrsta sæti í riðlinum fyrir mót, þær byrjuðu mótið frekar brösulega en hafa náð sér ágætlega á strik, deildin er frekar jöfn í ár og getur enn allt gerst.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin
Komiði sæl kæru lesendur og velkomin á beina textalýsingu frá Kórnum þar sem leikur HK og Selfoss fer fram í lengjudeild kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.