Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
Gráskýjað og haust í lofti
Vestri
Vestri
1 - 0
ÍR
ÍR
Ibrahima Balde 73'1 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Vestri sendi ÍR í alvöru fallbaráttu

Hvað réði úrslitum?

Vestramenn voru einfaldlega hættulegri fram á við í dag og nýttu sín færi. Liðin óðu ekkert í færum en þau voru nokkur og Vestri gerði betur í þeim augnablikum.

Bestu leikmenn

1. Ibrahima Balde

Balde kom til baka eftir meiðsli og skoraði eina mark leiksins. Hann var einnig stór partur af uppspili Vestra og boltinn fór mikið í gegnum hann.

2. Marvin Darri Steinarsson

Það var ekki mikið að gera hjá Marvin í dag en þegar skotin komu þá var hann tilbúinn og varði tvisvar mjög vel. Sömuleiðis ætla ég að gefa vörn Vestra lof fyrir að halda hreinu í fyrsta sinn í langan tíma.

Atvikið

Á 90. mínútu var Þorri Heiðar kantmaður ÍR nálægt því að jafna leikinn þegar hann komst í skotfæri sem Marvin varði. Mark þarna hefði líklega gefið ÍR stig.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri lyfta sér upp í 7 sæti deildarinnar og styrkja sína stöðu í miðjunni. Það er jafn langt fyrir Vestra í umspilssæti og niður í fallsæti svo að úr þessu finnst mér líklegt að þeir verði fyrir miðju í lok tímabils. ÍR eru hins vegar komnir í mikla fallbaráttu, Völsungur vann í Þorlákshöfn fyrr í kvöld sem gerði það að verkum að ÍR er tveim stigum frá fallsæti.

Vondur dagur

Vilhelm Þráinn Sigurjónsson markmaður ÍR hefði getað gert betur í marki Vestra, þó að bakfallspyrnan hafi verið flott þá var hún laus og Vilhelm í í boltanum. Hann átti einnig áhugavert úthlaup sem hefði getað endað með marki.

Dómarinn - 8

Guðmundur Páll og hans menn dæmdu leikinn vel. Mér fannst línan flott, hann leyfði slatta, en notaði flautuna vel þegar hann þurfti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.