SKÝRSLAN: Útileikurinn eyðilagði drauminn fyrir Víkingum
Hvað réði úrslitum?
Örstutt augnablik þar sem Víkingar slökkva á sér. Þá refsa lið sem eru þetta góð eins og FC Thun. Víkingarnir voru heilt yfir frábærir í dag og fengu færi til þess að skora fleiri mörk, en heppnin var ekki með þeim.
Bestu leikmenn
1. Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur)
Stígur var stórkostlegur í dag, fór mjög illa með alla varnarmenn sem mættu honum. Gestirnir skiptu meira segja um bakvörð á tímabili en það breytti engu. Svo skoraði hann seinna jöfnunarmark Víkinga.
2. Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)
Gylfi virkaði frekar 26 ára heldur en 36 ára í dag. Þvílik orka og hlaup á miðjunni, fastar tæklingar og lagði líf og sál í þennan leik. Hann skoraði fyrsta markið í leiknum með einhverju ,,Gylfalegasta" marki sem maður hefur séð. Hnitmiðað skot fyrir utan teig.
Atvikið
Þegar Valdimar Þór kom Víkingum yfir á 55. mínútu og Víkingar höfðu þá 35 mínútur til þess að skora tvö í viðbót. Þá kom alvöru trú í alla á vellinum, leikmenn og stuðningsmenn. Víkingar voru nálægt því en það tóks ekki á endanum.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru úr leik í Evrópudeildinni en fara núna í umspil fyrir sæti í Sambandsdeildinni gegn Borac Banja Luka, en þeir mættu þeim síðast í Nóvember 2024 þar sem Víkingar unnu 2-0.
Vondur dagur
Erfitt að skella skuldina á einstaklinga eftir svona frammistöðu. Í heildina er það bara smá einbeitingarleysi sérstaklega í fyrsta markinu sem fer með þetta. Svo hefði Daði Berg alveg mátt sleppa því að vera fyrir þegar Gylfi var í dauðafæri og skotið hans var á leiðinni í markið.
Dómarinn - 4
Portúgalski dómarinn Luis Godinho átti ekki góðan leik. Línan í spjöldum var mjög skrítin. Gestirnir byrjuðu snemma að tefja og hann refsaði þeim lítið sem ekkert fyrir það. Uppbótartíminn var sáralítill miðað við allar tafirnar, en á endanum voru svo sem engir risa dómar sem hann missir af. Hans frammistaða er því líkast til ekki ástæðan fyrir úrslitunum en það hjálpaði ekki.



