SKÝRSLAN: Er Þróttur að fara á taugum?
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var til að byrja með nokkuð jafn, síðan komast Grindavík yfir, og þá setja Þróttur í gírinn og sköpuðu sér fullt af góðum færum og góðum stöðum. Í seinni hálfleik byrjuðu Þróttur að sækja víti eftir að seinni hálfleikurinn var aðeins 20 sekúndna gamall, Kári skoruðu af miklu öryggi úr vítaspyrnunni svo sköpuðu Þróttarar sér ekkert mikið af færum eftir markið og leikurinn var bara í járnum þangað til Grindavík kemst aftur yfir. Munurinn var aðallega bara færanýtinginn.
Bestu leikmenn
1. Damir Muminovic
Þetta var fáranlega auðvelt val. Damir spilaði eins og kóngur hér í dag fékk reyndar á sig víti en það kom ekki að sök annað bjargaði samir einu sinni af línu og henti sér fyrir allt fáránlega góður í dag. Top 5 hafsent á Íslandi?
2. Ibra Camara
Mjög öflugur leikmaður sem Grindavík sóttu þarna!
Vann skítavinunna fáránlega vel mjög sterkur og erfiður að eiga við.
Vann skítavinunna fáránlega vel mjög sterkur og erfiður að eiga við.
Atvikið
Atvikið er rauða spjaldið á Friðrik Franz ,miðað við það sem ég komst að áðan og mér var sagt var leikmaður Þróttar, á leið að taka innkast og Friðrik heldur á boltanum og ýtir í Friðrik og Friðrik og Friðrik ýtir á móti og fær rautt spjald.
Þetta er það sem ég komst að sá ekki atvikið sjálft!
Þetta er það sem ég komst að sá ekki atvikið sjálft!
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur þurftu virkilega á sigri að halda, sérstaklega eftir úrslit kvöldsins þar sem Fylkir og Afturelding skyldu jöfn, þá hefðu Þróttarar verið einir á toppnum. Þetta var hins vegar fáránlega mikilvægur sigur fyrir Grindavík í þessari botnbaráttu sem þeir eru í líka vegna þess að Völsungur unnu Ægi í dag og halda Grindavík Völsungi aðeins frá sér.
Vondur dagur
Magnús Þórðarson, verður að taka þetta á sig, fékk rosalega mikið af færum en nýtti þau ekki og var tekinn af velli eftir rúman klukkutíma.
Dómarinn - 4
Gunnar Freyr, átti virkilega slakan leik mikið af skrítnum ákvörðunum og bara ekki vel dæmdur leikur því miður.



