SKÝRSLAN: Markametið slegið í öruggum sigri
Hvað réði úrslitum?
Vinnusemi og elja Njarðvíkinga. Þeir mættu tilbúnir til leiks frá fyrstu mínútu og var Gróttuliðið að elta allan leikinn.
Bestu leikmenn
1. Valdimar Jóhannsson - Njarðvík
Var hrikalega öflugur í dag. Skoraði gott mark og stýrði spili Njarðvíkur afar vel.
2. Arnar Helgi Magnússon - Njarðvík
Átti frábæran leik líkt og Njarðvíkurliðið allt og kórónaði það með opnunarmarki leiksins. Spilaði af gríðurlegu öryggi og smitaði það út frá sér til alls liðsins.
Atvikið
Þegar Oumar Diouck bætir markamet Njarðvíkur, já í tvígang. Þá er gaman að segja frá því að þegar að Kenneth Hogg, sem átti metið fyrir leik kvöldsins, sló metið á sínum tíma þá gerði hann það einmitt líka á Vivaldivellinum.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar færast nær toppi Lengjudeildarinnar en þeir eru í 4. sæti, þremur stigum frá toppliði Aftureldingar þegar fjórar umferðir eru eftir.
Grótta situr eftir sem áður í 6. sæti, fimm stigum á eftir HK í 5. sætinu, þó með leik til góða, og eru farnir að elta í baráttunni um umspilssæti.
Grótta situr eftir sem áður í 6. sæti, fimm stigum á eftir HK í 5. sætinu, þó með leik til góða, og eru farnir að elta í baráttunni um umspilssæti.
Vondur dagur
Gróttuliðinu vantaði leiðtoga í kvöld til að jafna spennustig Njarðvíkur en því miður þá var fyrirliði Gróttu, Grímur Ingi Jakobsson, allt að því ósýnilegur í þessum leik og veit hann það sennilega manna best sjálfur.
Dómarinn - 6
Þetta var þægilegur leikur til að dæma fyrir Twana og hans fylgdarlið. Það voru engin stór atvik sem þurfti að taka og fékk leikurinn almennt að fljóta þokkalega.


