Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
3 - 2
Stjarnan
Stjarnan
Allison Grace Lowrey 14'1 - 0Ágústa María Valtýsdóttir 15'2 - 02 - 122' Murielle TiernanAllison Grace Lowrey 52'3 - 13 - 277' Fanney Lísa Jóhannesdóttir
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: ÍBV í þriðja sætið

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var frekar jafn fyrstu mínúturnar en Eyjakonur tóku svo eiginlega yfir leikinn og uppskáru tvö mörk með stuttu milli bili. Stjarnan minnkaði muninn stuttu síðar en ÍBV voru sanngjarnt yfir í hálfleik. Mér fannst ÍBV mun hættulegri í síðari hálfleik en það var ekki fyrr en í lok leiks sem Stjarnan setti alvöru pressu á ÍBV og náðu að minnka muninn í 3-2. Það var kannski svolítið seint sem þær tóku við sér og náðu ekki inn jöfnunarmarki.

Bestu leikmenn

1. Allison Grace Lowrey

Var og er alltaf hættuleg fyrir Eyjaliðið. Skorar fyrsta mark ÍBV og mikilvæga þriðja markið. Hún var svo alltaf að koma sér í hættulegar stöður og það virðist bara vera mjög erfitt að eiga við hana.

2. Allison Patricia Clark

Öflug á miðsvæðinu hjá ÍBV í dag. Var endalaust að taka hlaup fyrir aftan vörn Stjörnunnar og var að skapa fyrir liðsfélaga sína.

Atvikið

Stjarnan fékk dauðafæri á loka?ínútum leiksins þegar þær fengu aukaspyrnu nálægt vítateig ÍBV. Andrea Mist kom með frábæran bolta beint á kollinn á Jakobínu en skallinn hennar arfaslakur.

Hvað þýða úrslitin?

Með sigrinum komst ÍBV upp fyrir Stjörnuna og eru í þriðja sæti með 24 stig. Stjarnan er í sæti neðar með 23 stig.

Vondur dagur

Verð að gefa Jakobínu þetta. Fær frábært færi til að jafna leikinn fyrir Stjörnuna undir lok leiks en þegar hún skallaði boltann yfir markið úr dauðafæri.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Hreini Magnússyni. Man ekki eftir einhverjum vafaatriðum svo hann kom sér vel frá þessu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.