SKÝRSLAN: Stál í stál í stórleiknum
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið vildu þennan sigur en hann datt ekki fyrir annaðhvort þeirra. Það gaf okkur þennan stórskemmtilega leik sem endaði í 6 marka jafntefli. Það voru að öllum líkindum sanngjörn úrslit.
Bestu leikmenn
1. Haukur Örn Brink (Afturelding)
Skoraði sturlað mark, lagði upp og hann skapaði mikla hættu fyrir vörn Fylkis.
2. Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Skoraði flott skallamark og setti tóninn fyrir framhaldið af leiknum. Var öflugur bæði í vörn og sókn.
Atvikið
Mark Guðfinns Leós á 59. mínútu. Þá opnaðist leikurinn fyrir alvöru, harkan óx og skemmtunin varð enn meiri.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding styrkir stöðuna örlítið á toppnum á meðan Fylkir jafnar Þrótt að stigum. Liðin sitja enn í 1. og 3. sæti en eru bæði í betri stöðu eftir tap Þróttar í Grindavík.
Vondur dagur
Fylkisvörnin í fyrsta marki Aftureldingar. Allir voru steinsofandi í langa innkastinu sem kom inn á teiginn. Enginn talaði og enginn vissi hver átti að koma boltanum frá. Hver veit nema leikurinn hefði spilast öðruvísi fyrir Fylki hefði Afturelding ekki jafnað í fyrri hálfleik.
Dómarinn - 8
Helgi Mikael setti línu sem hann hélt sér við. Leyfði leiknum að fljóta ágætlega og það er ekkert sem ég get sett út á hann.


