SKÝRSLAN: Öruggur Völsungssigur í Þorlákshöfn
Hvað réði úrslitum?
Gestirnir voru einfaldlega miklu betri í dag. Þeir höfðu frekar góða stjórn allan tíman og þegar að Ægismenn náðu að ógna þá greip Victor í marki Völsungs vel inní.
Bestu leikmenn
1. Dagbjartur Búi Davíðsson
Dagbjartur var virkilega góður í dag og skoraði bæði mörk gestanna. Seinna markið var alvöru negla niður í fjærhornið.
2. Xabi Cardenas
Xabi var algerlega frábær á miðjunni hjá Völsungi í dag og var gjörsamlega útum allt og vann endalaust af boltum. Frábært fyrir Völsung að hann sé dottinn í gang.
Atvikið
Fyrra mark Völsungs. Gestirnir voru búnir að vera með yfirburði en þegar Dagbjartur skoraði fyrsta mark leiksins fékk maður það á tilfinninguna að þessi sigur yrði ekki í hættu.
Hvað þýða úrslitin?
Völsungur fær 3 mjög mikilvæg stig og hleypa heldur betur lífi í fallbaráttuna.
Ægismenn eru hins vegar svo gott sem fallnir.
Ægismenn eru hins vegar svo gott sem fallnir.
Vondur dagur
Jordan Adeyemo er frábær framherji en hann átti ekki góðan dag í dag. Í þeim fáu tækifærum sem að heimamenn fengu í dag þá var Jordan alltaf skrefi of seinn.
Dómarinn - 7
Fín dómgæsla í heildina. Smáatriði hér og þar eins og alltaf en bara fín frammistaða hjá dómaranum.


