Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Kórinn
Allt upp á tíu eins og vanalega
HK
HK
2 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Karl Ágúst Karlsson 50'1 - 01 - 177' Daði Bærings HalldórssonAtli Þór Gunnarsson 81'2 - 1
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Hvers vegna vilja HK-ingar flytja út?

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar stýrðu leiknum framan af og óðu í færum. Það var Ólafi Íshólm að þakka að HK-ingar hefðu ekki verið með meiri forystu. Í stöðunni 2-1 sóttu Leiknismenn og voru leikar æsispennandi undir lokin. Allt kom fyrir ekki og HK-ingar unnu nokkuð sanngjarnan sigur.

Bestu leikmenn

1. Ólafur Íshólm Ólafsson (Leiknir R.)

Átti yfir fimm frábærar vörslur í leiknum. Erfitt að taka ekki undir með Brynjari Birni sem sagði hann besta markvörð deildarinnar eftir leik.

2. Karl Ágúst Karlsson

Hefur farið meira fyrir Karli úti á hægri kantinum en hann skoraði glæsilegt mark og var ógnandi. Atli Þór Gunnarsson skoraði einnig glæsilegt mark og á hrós skilið fyrir sterka innkomu.

Atvikið

Huggulegt mark Atla Þórs verður að fá þessa nafnbót. Lagði hann fyrir sig fyrir utan teig og smellti honum í bláhornið. Sömuleiðis voru lokamínúturnar spennuþrungnar þar sem Leiknismenn voru í leit að jöfnunarmarki.

Hvað þýða úrslitin?

HK hefur enn ekki tapað deildarleik í Kórnum á tímabilinu. Alls hefur liðið unnið átta af níu heimaleikjum. Eina jafnteflið var gegn Grindavík. Stóra spurningin er hvers vegna er á döfinni hjá félaginu að flytja heimavöll liðsins út fyrst gengið í Kórnum er svona? Liðið er nú í fimmta sæti, fjórum stigum á toppnum og mætir efstu þremur liðunum, ásamt Grindavík, í síðustu fjórum leikjunum. Þá er Leiknir í 8. sæti með 22 stig, fimm stigum frá fallsæti. Þeir eiga heimaleik næst gegn Ægi sem eru svo gott sem fallnir.

Vondur dagur

Jóhann Þór Arnarsson gerði sig sekan um hræðileg mistök þegar hann átti glórulausa sendingu til baka. Hann senti beint á Birni Breka Burknason, leikmann Leiknis í teig HK og upp úr því kom mark Leiknis. Jóhann þurfti þó ekki að burðast með sektarkenndina lengi því aðeins fimm mínútum síðar skoraði Atli Þór Gunnarsson glæsimark og kom HK aftur yfir.

Dómarinn - 8

Stefán Ragnar og félagar voru flottir í dag. Örfáir dómar sem voru áhugaverðir en heilt yfir ekkert hægt að kvarta yfir dómgæslunni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.