Fyrir leik
Stuðlarnir
Fyrir leik
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson er með flautunna í dag honum til halds og trausts eru þeir:
Kristófer Bergmann og Guðni Freyr Ingvason. Eftirlitsmaðurinn er Gunnar Helgason
Kristófer Bergmann og Guðni Freyr Ingvason. Eftirlitsmaðurinn er Gunnar Helgason

Fyrir leik
Gestirnir úr Laugardalnum!
Þróttur eru í mikilli toppbaráttu og stefna á það að fara beint upp í deild þeirra bestu. Þróttur eru jafnir Aftureldingu á toppnum með 34 stig hins vegar á Afturelding leik til góða. Varnarleikur Þróttar hefur verið góður á tímabilinu og hefur ekkert lið fengið færri mörk á sig. Þróttarar hafa hins vegar verið klaufar í nokkrum leikjum eins og í síðasta leik þar sem þeir gerðu 1-1 jafntefli gegn Gróttu.

Fyrir leik
Heimamenn í basli!
Grindavík eru búnir að vera í basli á þessu tímabili og eru aðeins þremur stigum frá fallsæti, og fer núna hvert stig að skipta máli. Grindavík hafa aðeins unnið þrjá leikji á þessu tímabili. Björtu hliðarnar eru þær hins vegar að þeir hafa aðeins fengið 24 mörk á sig í 17 leikjum. Einu liðin sem hafa fengið færri mörk á sig eru Njarðvík og einmitt Þróttur sem þeir mæta í dag. Mitt gisk að það komi ekki mikið af mörkum í dag. Grindavík kíktu í heimsókn í Mosó í síðustu umferð en töpuðu þeim leik 4-1.

Fyrir leik
Lengjudeildar-veislan heilsar!
Það fer fram Lengjudeildarslagur í dag, þar sem Grindavík tekur á móti Þrótturum í 18 umferð Lengjudeildar karla!





Grindavík er með 5.18
Þróttur er með 1.58
Jafntefli er á stuðlinum 4.46