Fyrir leik
HK-ingar óstöðvandi í Kórnum
Fyrir leik
Óvæntur Leiknissigur - Fýluferð HK á Húsavík
Leiknismenn unnu heldur betur óvæntan 3-0 sigur á Leikni í síðustu umferð. Uppaldni HK-ingurinn Birnir Brekir Burknasonfór þar á kostum og skoraði fyrsta mark liðsins.
HK-ingar heimsóttu Völsung heim á Húsavík síðastliðinn sunnudag og tapaði liðið 3-2.
HK-ingar heimsóttu Völsung heim á Húsavík síðastliðinn sunnudag og tapaði liðið 3-2.
Fyrir leik
Hart barist um umspilssætin
Farið er að síga á seinni hluta Lengjudeildarinnar. Sæti 2-5 tryggja liðum í umspil um að komast upp í Bestu deildina.
HK er í 5. sæti með 28 stig, tveimur stigum á undan Gróttu sem er í 6. sæti. Þar fyrir aftan eru Leiknismenn með 22 stig.
Njarðvík er í 4. sæti með 29 stig en Njarðvíkingar heimsækja Gróttu í kvöld.
Spilað er eftir þessu fyrirkomulagi í fjórða sinn í ár. Leiknir hefur aldrei áður komist í umspilið en HK-ingar fóru alla leið í úrslitaleikinn í fyrra en töpuðu þar sannfærandi gegn Keflavík.

Eiður Gauti spáir HK-ingum sigri
Eiður Gauti Sæbjörnsson, leikmaður KR, er spámaður umferðarinnar og hann spáir HK sigri. Eiður er uppalinn HK-ingur.
HK 3-2 Leiknir
HK-ingar sáttir að komast aftur heim í hlýjuna eftir fýluferð norður. AHA10 búinn að ströggla aðeins í golfinu undanfarið og tekur reiði sína út á greyið Leiknismönnum, skorar og leggur upp og fer síðan í eina tveggja fóta tæklingu sem dómari missir af. BBB og Axel Freyr svara fyrir Leiknismenn en Birgir Steinn setur sigurmarkið með marki úr horni í home debut og rífur sig á kassann.

Kórinn heilsar!
Góðan og gleðilegan fimmtudag lesendur góðir, veriði velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kórnum þar sem HK tekur á móti Leikni.

Árangur HK-inga á útivelli hefur aftur á mótið verið arfaslakur og hefur liðið aðeins unnið tvo af níu útileikjum.