Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Fyrir leik
Njarðvík
Eftir bras í byrjun móts hefur heldur betur kveiknað á Njarðvíkingum og sitja þeir í 4. sæti Lengjudeildarinnar með 29 stig, þremur fleiri en Grótta í 6. sæti.
Njarðvíkingar hafa unnið fimm leiki af síðustu sex og eru að toppa á hárréttum tíma.

Njarðvíkingar hafa unnið fimm leiki af síðustu sex og eru að toppa á hárréttum tíma.

Fyrir leik
Grótta
Fyrir leik kvöldsins situr Grótta í 6. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir HK í 5. sætinu en Grótta hefur leikið einum leik færri en liðin í kringum sig.
Gróttumenn náðu í gott stig gegn toppliði Þróttar í síðustu umferð og koma inn í þennan leik á ágætis siglingu eftir tvo sigurleiki þar á undan.

Gróttumenn náðu í gott stig gegn toppliði Þróttar í síðustu umferð og koma inn í þennan leik á ágætis siglingu eftir tvo sigurleiki þar á undan.

Fyrir leik
Verið velkomin á Vivaldivöllinn
Í kvöld taka heimamenn í Gróttu á móti Njarðvíkingum í 18. umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu.





Grímur Ingi Jakobsson kom Gróttumönnum yfir í byrjun síðari hálfleiks en Hrafn Guðmundsson jafnaði fyrir Njarðvík þegar um 10 mínútur voru til leiksloka. Það var svo Axel Sigurðarson sem tryggði Gróttumönnum sigurinn á 90. mínútu með glæsimarki.