Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24392 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR29.07.2025, 16:00

Íslandsvinurinn Asmir Begovic í Leicester (Staðfest)

Íslandsvinurinn Asmir Begovic er ekki á þeim buxunum að hætta strax en hann hefur núna samið við Leicester. Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og spilar í Championship-deildinni á komandi tímabili.

FRÉTTIR29.07.2025, 15:44

Pétur Theodór tekur síðasta dansinn með Gróttu (Staðfest)

Pétur Theodór Árnason er mættur aftur í uppeldisfélagið Gróttu og er kominn með leikheimild með liðinu fyrir leikinn gegn Dalvík/Reyni sem fram fer á Dalvík á morgun. Pétur Theodór er mikill markaskorari en hefur verið mjög óheppinn með hnémeiðsli á sínum ferli. Hann lék fyrri hluta tímabilsins með Kríu, venslaliði Gróttu, í 4. deildinni og skoraði sjö mörk í sjö leikjum.

FRÉTTIR29.07.2025, 14:33

Grindavík fær bakvörð með reynslu úr hollensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Grindavík hefur fengið hægri bakvörðinn Terry Lartey Sanniez í sínar raðir. Á Transfermarkt var hann síðast skráður í NEC Nijmegen árið 2023 og ekki með skráð félagaskipti eftir það. Hann hefur hins vegar spilað neðri deildar fótbolta í Amsterdam, eitthvað sem ekki er skráð á Transfermarkt.

FRÉTTIR29.07.2025, 12:30

Joao Felix í Al-Nassr (Staðfest)

Portúgalinn Joao Felix er genginn í raðir Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Hann kemur þangað frá Chelsea fyrir 30 milljónir evra. Upphæðin gæti svo hækkað í 50 milljónir evra síðar meir. Samningur Felix við Al-Nassr gildir til ársins 2027.

FRÉTTIR29.07.2025, 11:50

Jóhannes Kristinn í Kolding (Staðfest)

Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn í raðir danska félagsins Kolding og skrifar hann undir samning þar til 2029. Faðir hans, Bjarni Guðjónsson, birtir mynd af Jóhannesi þar sem hann er mættur í æfingafatnað frá Kolding. Á myndinni er hann að skrifa undir samninginn.

FRÉTTIR29.07.2025, 09:49

Víkingur lánar Almo í Njarðvík (Staðfest)

Ali Al-Mosawe hefur verið lánaður frá Víkingi til Njarðvíkur út þetta tímabil. Hann er kominn með leikheimild en Njarðvík leikur gegn HK í Lengjudeildinni í kvöld.

FRÉTTIR29.07.2025, 08:00

Bednarek frá Southampton til Porto (Staðfest)

Jan Bednarek er genginn til liðs við Porto frá Southampton. Bednarek er 29 ára gamall pólskur miðvörður en hann hefur verið í herbúðum Southampton frá 2017. Hann gekk til liðs við félagið frá Lech Poznan.

FRÉTTIR28.07.2025, 19:41

Arftaki Gyökeres mættur til Sporting (Staðfest)

Victor Gyökeres gekk til liðs við Arsenal frá portúgalska félaginu Sporting á laugardaginn. Sporting hefur fundið eftirmann hans. Sá heitir Luis Javier Suarez og kemur til liðsins frá spænska félaginu Almería. Sporting borgar 25 milljónir evra og fær Almería 10 prósent af næstu sölu. Hann skrifar undir fimm ára samning.

FRÉTTIR28.07.2025, 17:52

Gils Gíslason aftur í ÍR (Staðfest)

Gils Gíslason er kominn aftur í ÍR á láni frá FH. Gils eru uppalinn í FH en hann var lánaður í ÍR fyrir ári síðan. Hann kom við sögu í ellefu leikjum í Lengjudeildinni með ÍR á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark þegar liðið komst í umspil um sæti í Bestu deildinni. Hann kom aðeins við sögu í einum leik í Bestu deildinni í sumar.

FRÉTTIR28.07.2025, 16:00

Óliver Elís aftur í ÍR (Staðfest)

Varnarmaðurinn Óliver Elís Hlynsson er kominn aftur í ÍR eftir að hafa gengið í raðir Fram fyrir þetta tímabil. Tækifærin hafa verið af skornum skammti fyrir Óliver hjá Fram en hann hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum í Bestu deildinni í sumar.

FRÉTTIR27.07.2025, 16:02

Kynntur hjá Njarðvík en er búinn að skrifa undir hjá Grindavík (Staðfest)

Spænski framherjinn Manuel Gavilán var kynntur sem nýr leikmaður Njarðvíkur fyrr í þessum mánuði en félagið hætti hinsvegar við að fá hann. Hann hefur nú skrifað undir hjá Grindavík. Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net voru Njarðvíkingar ekki ánægðir með líkamlegt ástand hans þegar hann mætti.

FRÉTTIR27.07.2025, 13:00

Völsungur fær þrjár á láni frá Þór/KA (Staðfest)

Kvennalið Völsungs hefur fengið vænan styrk fyrir seinni hluta tímabilsins en þær Hildur Anna Birgisdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir og Eva S. Dolina-Sokolowska eru allar komnar á láni frá Þór/KA.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.