FRÉTTIR09.04.2026, 07:00
Eyrún Vala Harðardóttir er gengin til liðs við Val en hún kemur frá Fram.
Eyrún er fædd árið 2004 og er uppalin í Breiðabliki. Hún hefur spilað með Augnabliki, Aftureldingu, Stjörnunni og HK ásamt Fram á meistaraflokksferlinum.
FRÉTTIR09.04.2026, 06:00
ÍBV hefur nælt í markvörðinn Arden La-Rose en hún kemur úr Ohio State Buckeyes háskólanum þar sem hún stundaði frjálsar íþróttir samhliða fótboltanum og þótti góður hlaupari.
Hún er fædd í Kanada en á yngri landsleiki fyrir Guyana.
FRÉTTIR08.04.2026, 06:00
Víkingur Ólafsvík hefur sótt tvo sterka leikmenn fyrir komandi átök á Íslandsmótinu en þeir Benjamin Mehic og Max Alex Bochra eru komnir frá Kára og Reyni H.
FRÉTTIR07.04.2026, 16:12
Ævintýramanninum Patrick De Wilde hefur verið sagt upp störfum hjá Völsungi samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
<b>Uppfært 16:19:</b> Völsungur hefur staðfest tíðindin, í tilkynningu félagsins segir að Völsungur og De Wilde hafi samið um starfslok. Þeir Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson munu stýra liðinu til bráðabirgða.
De Wilde var kynntur sem nýr þjálfari um miðjan desember en liðið hefur ekki átt góðu gengi að fagna á undirbúningstímabilinu.
Völsungur ákvað að draga liðið úr keppni í Lengjubikarnum fyrr í vetur. Þá tapaði félagið gegn 2. deildarliði Kormáks/Hvatar í Mjólkurbikarnum og tapaði sömuleiðis gegn 2. deildarliði Magna í æfingaleik á föstudaginn var.
FRÉTTIR07.04.2026, 09:08
Harry Maguire hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Manchester United en hann átti að renna út eftir tímabilið.
Maguire er 33 ára og er fyrrum fyrirliði liðsins en hann kom til United frá Leicester fyrir 80 milljónir punda 2019.
Hann hefur spilað 266 leiki fyrir félagið og unnið FA-bikarinn og deildabikarinn.
FRÉTTIR05.04.2026, 13:30
Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld er genginn til liðs við Gróttu en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Mattías er fæddur og uppalinn Valsari og hefur leikið á Hlíðarenda upp yngri flokkana. Hann lék einn leik í Bestu deildinni síðasta sumar og þá hefur hann verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands. Mattías er sókndjarfur leikmaður en hann lagði einmitt upp mark í sigri U17 á Portúgal fyrr í vikunni.
FRÉTTIR05.04.2026, 06:00
Albert Hafsteinsson hefur verið ráðinn í þjálfarateymi Kára og hjá 2. flokki ÍA. Kári spilar í 2. deild í sumar.
Skagamenn þekkja Albert vel en hann ólst upp hjá félaginu. Hann spilaði 188 leiki fyrir liðið og skoraði 21 mark. Hann kom við sögu í 17 leikjum í Bestu deildinni síðasta sumar.
FRÉTTIR04.04.2026, 10:50
Kieran Trippier, varafyrirliði Newcastle United, mun yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.
FRÉTTIR03.04.2026, 18:49
Ægir Jarl Jónasson er genginn í raðir Fram frá danska liðinu AB. Samningur hans við félagið átti að renna út í lok júní en Framarar náðu samkomulagi við AB um að fá hann fyrr til liðsins.
Ægir er fæddur 1998, hann er fjölhæfur miðjumaður sem uppalinn er í Fjölni en gekk í raðir KR árið 2019 og spilaði þar undir stjórn Rúnars Kristinssonar, núverandi þjálfara Fram, áður en hann hélt til AB árið 2024.
Hjá AB spilaði hann fyrir Jóhannes Karl Guðjónsson sem hætti hjá danska félaginu í lok síðasta árs og tók við FH.
Ægir er að glíma við minni háttar meiðsli og sagði Rúnar Kristinsson það ólíklegt að hann myndi spila fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni sem er gegn ÍA þann 12. apríl, í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.
FRÉTTIR03.04.2026, 12:46
Gennaro Ivan Gattuso er hættur þjálfun ítalska landsliðsins en þetta staðfestir fótboltasambandið með yfirlýsingu í dag.
FRÉTTIR03.04.2026, 12:11
Bikarmeistarar Vestra hafa fengið til sín brasilíska varnarmanninn Edson til félagsins frá Rondoniense í Brasilíu.
FRÉTTIR03.04.2026, 09:00
ÍBV hefur staðfest komu Serbans Filip Stuparevic til félagsins.
Hann er 25 ára gamall framherji. Hann hefur spilað víða í Serbíu og var á mála hjá Watford og nú síðast hjá Mortherwell í Skotlandi.
FRÉTTIR02.04.2026, 13:30
Það vakti athygli í síðustu viku þegar Aldís Ylfa Heimisdóttir sagði upp hjá KSÍ. Skagamærin er nú mætt á heimaslóðir, til ÍA.
Hjá KSÍ sá hún um hæfileikamótun og U15 landslið kvenna. Hún hafði áður verið landsliðsþjálfari U17 og U16.
Hjá ÍA mun hún sinna þjálfun yngri flokka og verður samhliða því í verkefnastjórnun á skrifstofu félagisns.
FRÉTTIR02.04.2026, 07:00
Spánverjinn Alejandro Zambrano hefur samið við Hvíta riddarann um að vera spilandi aðstoðarþjálfari liðsins á komandi tímabili.
FRÉTTIR02.04.2026, 06:00
KV hefur fengið svakalegan styrk inn í leiktíðina en Óliver Dagur Thorlacius er kominn til félagsins frá KR.
FRÉTTIR02.04.2026, 06:00
Klara Mist Karlsdóttir er gengin í raðir HK á láni frá Þrótti út leiktíðina.
FRÉTTIR01.04.2026, 19:51
Kantmaðurinn Birnir Breki Burknason mun spila með Leikni á láni frá ÍA á komandi tímabili. Leiknismenn greina frá þessum tíðindum á <i>Instagram</i>.
FRÉTTIR01.04.2026, 19:28
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks hafa samið við bandaríska markvörðinn Taylor Kane en hún kemur frá Minnesota Aurora í heimalandinu.
FRÉTTIR01.04.2026, 18:23
Velski landsliðsmaðurinn Rabbi Matondo er formlega genginn í raðir norska félagsins Brann sem Freyr Alexandersson þjálfar, en hann kemur frá Rangers. Þetta staðfesti félagið í gær.
FRÉTTIR01.04.2026, 09:30
Vítor Hugo Cruz Rocha, eða Pisco, hefur gengið til liðs við ÍBV frá Portúgal. Hann lék áður í Portúgal, hefur spilað á Kýpur og var síðast í Aserbaísjan.
Pisco , sem er 29 ára, spilaði með ÍBV í æfingaferðinni og er portúgalski miðjumaðurinn búinn að samþykkja eins árs samning hjá Bestu deildar liðinu.
Næsti leikur ÍBV verður gegn Þrótti í Mjólkurbikarnum á laugardag.