Fotbolti.net
09.04.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

ÍBV sækir markvörð sem var í frjálsum íþróttum (Staðfest)

ÍBV sækir markvörð sem var í frjálsum íþróttum (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍBV

Hertz
ÍBV hefur nælt í markvörðinn Arden La-Rose en hún kemur úr Ohio State Buckeyes háskólanum þar sem hún stundaði frjálsar íþróttir samhliða fótboltanum og þótti góður hlaupari.

Hún er fædd í Kanada en á yngri landsleiki fyrir Guyana.
Færeysk landsliðskona í ÍBV (Staðfest)
TENGT EFNI

Færeysk landsliðskona í ÍBV (Staðfest)

Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir Eyjaliðið í 7-2 sigri gegn Keflavík í æfingaleik í síðasta mánuði.

„Að lokum vill Arden koma á framfæri að það sé heiður að byrja atvinnumannaferilinn með félagi sem hefur sögu og metnað eins og ÍBV. Hún segir að fótboltamenning á Íslandi sé ótrúleg og samfélagið hér í Eyjum hafi tekið henni mjög vel. Arden segist ekki geta beðið eftir að komast út á Hásteinsvöll og sýna hvað í henni býr fyrir liðið og stuðningsmenn þess," segir í tilkynningu ÍBV.

Hún er annar leikmaðurinn sem ÍBV, sem vann Lengjudeildina í fyrra, fær til sín.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.