Fotbolti.net
08.04.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ólsarar fá tvo leikmenn (Staðfest)

Ólsarar fá tvo leikmenn (Staðfest)
Canon

Mynd: Víkingur Ó.

Víkingur Ólafsvík hefur sótt tvo sterka leikmenn fyrir komandi átök á Íslandsmótinu en þeir Benjamin Mehic og Max Alex Bochra eru komnir frá Kára og Reyni H.
Max er 21 árs gamall heimamaður gekk í raðir Ólsara í byrjun mars en hann gerði samning út 2028.

Hann lék 15 leiki með Ólsurum áður en hann fór í Reyni H árið 2024 þar sem hann lék 26 leiki á tveimur tímabilum áður en hann sneri aftur heim.

Benjamin er 25 ára varnarmaður og sonur Zikrets Þórs Mehic, fyrrum leikmanns Ólafsvíkur.

Hann semur út þetta tímabil en hann kemur frá Kára á Akranesi.

Ólsarar lentu í 8. sæti 2. deildar á síðasta ári, átta stigum fyrir ofan fallsæti.
Max Bochra samdi við Ólsara í síðasta mánuði

Max Bochra samdi við Ólsara í síðasta mánuði

Canon

Mynd: Víkingur Ó.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.