Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
   þri 07. apríl 2026 16:12
Kári Snorrason
Úti er ævintýri - De Wilde rekinn frá Völsungi (Staðfest)
Lengjudeildin
Patrick De Wilde var í starfi í 110 daga.
Patrick De Wilde var í starfi í 110 daga.
Mynd: patrickdewilde.com
Ævintýramanninum Patrick De Wilde hefur verið sagt upp störfum hjá Völsungi samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Uppfært 16:19: Völsungur hefur staðfest tíðindin, í tilkynningu félagsins segir að Völsungur og De Wilde hafi samið um starfslok. Þeir Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson munu stýra liðinu til bráðabirgða.

De Wilde var kynntur sem nýr þjálfari um miðjan desember en liðið hefur ekki átt góðu gengi að fagna á undirbúningstímabilinu.

Völsungur ákvað að draga liðið úr keppni í Lengjubikarnum fyrr í vetur. Þá tapaði félagið gegn 2. deildarliði Kormáks/Hvatar í Mjólkurbikarnum og tapaði sömuleiðis gegn 2. deildarliði Magna í æfingaleik á föstudaginn var.

De Wilde stýrði kvennalandsliði Nepal áður en hann tók við Húsvíkingum, en þar áður var hann við stjórnvölinn hjá karlalandsliðum Sómalíu og Rúanda í Afríku.

Í viðtali við Fótbolta.net fyrr í vetur sagði De Wilde markmiðið sett á umspilssæti.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson lét af störfum sem þjálfari liðsins eftir síðasta tímabil en hann hafði stýrt liðinu í þrjú tímabil.

Slapp
banner