Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   mið 01. apríl 2026 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Portúgalskur miðjumaður skrifar undir í Eyjum (Staðfest)
Mynd: ÍBV
Vítor Hugo Cruz Rocha, eða Pisco, hefur gengið til liðs við ÍBV frá Portúgal. Hann lék áður í Portúgal, hefur spilað á Kýpur og var síðast í Aserbaísjan.

Pisco , sem er 29 ára, spilaði með ÍBV í æfingaferðinni og er portúgalski miðjumaðurinn búinn að samþykkja eins árs samning hjá Bestu deildar liðinu.

Næsti leikur ÍBV verður gegn Þrótti í Mjólkurbikarnum á laugardag.

Úr tilkynningu ÍBV
Hann var ánægður með að samþykkja eins árs samning við ÍBV og lítur á það sem frábært tækifæri til að efla atvinnumannaferil sinn.

Pisco sagði: „Ísland er frábært land og ÍBV er metnaðarfullt félag með mikla sögu.“ Þrátt fyrir að koma úr mun hlýrra loftslagi hefur hann engar áhyggjur af íslensku veðri. Honum hefur verið tekið mjög vel og hlakkar til að hefja tímabilið. Hann nefndi þó að hann hafi aldrei áður séð jafn mikinn snjó.

Við óskum honum alls hins besta með liðinu okkar

ÍBV
Komnir
Milan Jezdimirovic frá Serbíu
Liam Daði Jeffs frá Þrótti R
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá Fylki
Eiður Atli Rúnarsson frá HK
Pisco frá Aserbaísjan
Róbert Elís Hlynsson frá KR á láni
Sesar Örn Harðarson frá Selfossi
Ari Petersen frá KÍ Klaksvík (lán)
Viggó Valgeirsson frá Njarðvík (var á láni)

Farnir
Oliver Heiðarsson til Króatíu
Sverrir Páll Hjaltested í FH
Hjörvar Daði Arnarsson í Grindavík
Þorlákur Breki Þ. Baxter í Keflavík (var á láni frá Stjörnunni)
Birgir Ómar Hlynsson í Þór (var á láni)
Jörgen Pettersen til Bandaríkjanna
Elvis Okello Bwomono til Skotlands
Eiður Jack Erlingsson í Þrótt V.
Nökkvi Már Nökkvason í Gróttu
Indriði Áki Þorláksson
Víðir Þorvarðarson
Slapp
banner