Fotbolti.net
02.04.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Alejandro verður spilandi aðstoðarþjálfari í Mosó (Staðfest)

Alejandro verður spilandi aðstoðarþjálfari í Mosó (Staðfest)
Canon

Mynd: Hvíti riddarinn

Spánverjinn Alejandro Zambrano hefur samið við Hvíta riddarann um að vera spilandi aðstoðarþjálfari liðsins á komandi tímabili.
Alejandro er 31 árs gamall og með mikla reynslu, en hann spilaði með Recreativo Huelva ásamt því að leika með varaliðum Sporting Gijon og Villarreal.

Hann lék 19 leiki í B-deildinni á Spáni en hefur síðustu árið spilað með Dalvík/Reyni.

Nú er hann mættur í Mosfellsbæinn þar sem hann mun verða spilandi aðstoðarþjálfari Hvíta riddarans. Einnig mun hann þjálfa 2. flokk Aftureldingar.

Alejandro lék sinn fyrsta leik með Hvíta riddaranum í 5-2 tapi gegn Njarðvík í Mjólkurbikarnum á dögunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.