Fotbolti.net
01.04.26 - 19:51
Brynjar Ingi Erluson

Birnir Breki í Leikni (Staðfest)

Birnir Breki í Leikni (Staðfest)
Canon

Mynd: Leiknir R.

Lengjudeildin
Kantmaðurinn Birnir Breki Burknason mun spila með Leikni á láni frá ÍA á komandi tímabili. Leiknismenn greina frá þessum tíðindum á Instagram.
Leiknir fær Arnór Val frá ÍA (Staðfest)
TENGT EFNI

Leiknir fær Arnór Val frá ÍA (Staðfest)

Birnir Breki er fæddur 2006 og uppalinn í HK en hann var keyptur til ÍA á síðasta ári.

Þessi spennandi leikmaður kom til ÍA um mitt síðasta sumar og spilaði fjóra leiki í Bestu deildinni.

Hann hefur nú verið sendur til Leiknis á láni út tímabilið þar sem honum er ætlað stórt hlutverk.

Birnir hefur skorað fimm mörk í 43 meistaraflokksleikjum og á þar að auki þrjá leiki með U19 ára landsliði Íslands.

Þetta er annar leikmaðurinn sem Leiknir sækir á láni frá ÍA, en varnarmaðurinn Arnór Valur Ágústsson kom til félagsins fyrir fáeinum dögum síðan.

Leiknir hafnaði í 9. sæti Lengjudeildarinnar með 23 stig á síðasta tímabili.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.