Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   lau 26. desember 2020 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ingibjörg Sigurðar spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Þór Viðarsson var með sex rétta þegar hann spáði í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi.

Nú er annar í jólum og það verður leiki í deildinni í dag og á morgun. Ingibjörg Sigurðardóttir, sem hefur átt frábært ár með Vålerenga í Noregi og íslenska landsliðinu, spáir í leikina sem framundan eru.

Leicester 1 - 2 Man Utd (12:30 í dag)
Man Utd heldur áfram að safna inn stigum. Bruno færir stuðningsmönnum United þrjú stig með tveimur mörkum.

Aston Villa 2 - 1 Crystal Palace (15:00 í dag)
Grealish verður í stuði og skorar sigurmarkið.

Fulham 0 - 3 Southampton (15:00 í dag)
Ings með þrennu.

Arsenal 1 - 2 Chelsea (17:30 í dag)
Mjög jafn leikur en sjálfstraustið ekki nægilega gott hjá Arsenal-mönnum og Chelsea siglir sigrinum heim.

Man City 2 - 0 Newcastle (20:00 í kvöld)
Þetta verður öruggur sigur hjá City-mönnum í annars óspennandi leik.

Sheffield United 1 - 3 Everton (20:00 í kvöld)
Sheffield United-menn halda áfram að ströggla og það virðist enn ekkert ganga upp í þeirra herbúðum.

Leeds 2 - 2 Burnley (12:00 á sunnudag)
Leeds heldur áfram að skemmta en eru of veikir baka til til að klára leikina.

West Ham 1 - 0 Brighton (14:15 á sunnudag)
'Solid' leikur hjá West Ham.

Liverpool 3 - 0 West Brom (16:30 á sunnudag)
Sterkur leikur hjá Liverpool og West Brom mun ekki eiga séns; einstefna allan leikinn.

Wolves 2 - 3 Tottenham (19:30 á sunnudag)
Skemmtilegasti leikur umferðarinnar og mikill sóknarbolti, en Mourinho og hans menn klára þetta.

Fyrri spámenn
Haukur Harðarson - 7 réttir
Bjarni Þór Viðarsson - 6 réttir
Björn Bragi Arnarsson - 6 réttir
Sóli Hólm - 6 réttir
Gummi Ben - 5 réttir
Logi Bergmann Eiðsson - 5 réttir
Sara Björk Gunnarsdóttir - 5 réttir
Sölvi Tryggvason - 5 réttir
Elísa Viðarsdóttir - 4 réttir
Þorlákur Árnason - 4 réttir
Gunnar Birgisson - 4 réttir
Herra Hnetusmjör - 3 réttir
Birkir Már Sævarsson - 3 réttir
Steindi Jr. - 3 réttir
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner