Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 18. september 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Sölvi Tryggva spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Sölvi Tryggvason.
Sölvi Tryggvason.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Sölvi spáir Liverpool sigri gegn Chelsea.
Sölvi spáir Liverpool sigri gegn Chelsea.
Mynd: Getty Images
Sóli Hólm fékk sex rétta þegar hann spáði í leikina á Englandi um síðustu helgi.

Sölvi Tryggvason hefur vakið athygli fyrir vinsæla hlaðvarpsþætti undanfarnar vikur. Sölvi er Liverpool maður og hann spáir í leikina að þessu sinni.



Everton 3 - 1 WBA (11:30 á morgun)
Everton eru of öflugir fyrir West Brom og James mun leggja upp tvö.

Leeds 2 - 1 Fulham (14:00 á morgun)
Ég var mjög hrifinn af Leeds gegn mínum mönnum í fyrstu umferð og held að þeir verði öflugir í vetur. Fulham verða í basli.

Manchester United 1 - 1 Crystal Palace (16:30 á morgun)
Zaha setur eitt og United ná ekki að kreista fram sigur

Arsenal 2 - 0 West Ham (19:00 á morgun)
Arsenal eru ferskir þessa dagana og halda áfram á góðri siglingu

Southampton 2 - 2 Tottenham (11:00 á sunnudag)
Tottenham ættu að vinna, en þeir eru enn að basla með að finna taktinn og Ingsarinn verður erfiður

Newcastle 2 - 1 Brighton (13:00 á sunnudag)
Newcastle eru hægt og rólega að verða aftur alvöru lið og taka þennan.

Chelsea 2 - 3 Liverpool (15:30 á sunnudag)
Ég er skíthræddur við Chelsea, enda eru þeir með rosalegan mannskap, en ég treysti á að vörnin þeirra og markmannavesen skili því að þeir verði lekir í þessum leik.

Leicester 2 - 0 Burnley (18:00 á sunnudag)
Leicester halda áfram fullu húsi og Vardi setur allavega eitt. Burnley verða í basli í vetur

Aston Villa 1 - 1 Sheffield United (17:00 á sunnudag)
Sheffield Utd eru aðeins öflugri en Villa, en þeir ná ekki sömu hæðum í vetur og í fyrra og Villa ná í stig

Wolves 2 - 2 Manchester City (19:15 á mánudag)
Þetta er alvöru leikur og ég treysti á portúgölsku vélina með Jimenez í stuði. X á þennan.

Fyrri spámenn
Sóli Hólm - 6 réttir
Athugasemdir
banner
banner