Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull: Við áttum inni í xG-inu að setja eitthvað inn í markið
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Snerti hann og kontra svo í Samúel"
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
   mið 28. júlí 2021 22:44
Haraldur Örn Haraldsson
Ási Arnars: Hefðum getað drepið leikinn fyrr
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis var kátur eftir að sigra Grindavík 2-1 á heimavelli.

Þetta hafði hann að segja um spilamennsku liðs síns.

„Spilamennskan var svona upp og niður. Við áttum ágætis kafla í leiknum en það var alltof oft sem við vorum óþarflega stressaðir á boltann og náðum ekki að halda nægilega vel í hann. Hefðum alveg getað drepið leikinn aðeins fyrr. Við áttum opnanir, möguleika og færi og þar hefðum við getað gert betur en heilt yfir við vinnum leikinn, fáum 3 stig sem er gríðarlega mikilvægt þannig ég er ánægður með það."

Lestu um leikinn: Fjölnir 2 -  1 Grindavík

Um frammistöðu Jóhanns Árna.

„Hann er búinn að vera jafnt og þétt vaxandi inn í mótið. Ég er bara heilt yfir ánægður með Jóhann Árna. Hann er orðinn meira áberandi og meira í færum, hann er kominn aðeins framar á völlinn þannig menn taka aðeins meira eftir honum en búið að vera stígandi í þessu hjá honum og vonandi heldur það áfram."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan en þar talar Ási nánar um leikinn, möguleika Fjölnis að fara upp og dómgæsluna í leiknum.
Slapp
banner
banner