29.11.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson
Cherki utan hóps - „Ekki hrifinn af því hvernig hann stóð sig á æfingum“

Rayan Cherki

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Rayan Cherki

Mynd: EPA
Franski sóknartengiliðurinn Rayan Cherki er utan leikmannahóps Manchester City fyrir stórleikinn gegn Englandsmeisturum Arsenal í dag, en Enzo Maresca, stjóri City, ákvað að skilja hann eftir utan hópsins að þessu sinni.

TENGT EFNI
Byrjunarlið Arsenal og Man City: Góðar og slæmar fréttir hjá meisturunum
Eftir 2-2 jafntefli Man City gegn Napoli gagnrýndi Cherki samherja sína og sagði þá ekki hafa sýnt nægilega mikla orku í leiknum.
Ummælin komu Maresca í opna skjöldu þegar hann var spurður út í þau á blaðamannafundi og virðast þau nú hafa dregið dilk á eftir sér.
Maresca segir þó að ástæðan fyrir því að Cherki sé ekki í leikmannahópnum sé frammistaða hans á æfingum undanfarna daga. Skilaboðin frá stjóranum eru skýr, enda ætlar hann ekki að sætta sig við neitt hálfkák.
„Ég hef verið mjög skýr með það síðan ég tók við að frammistaða á æfingum ræður ákvörðunum mínum. Ég var ekki ánægður með hvernig hann stóð sig á æfingum síðustu daga.“
„Þetta er ekkert agamál, en það er mikilvægt að æfa vel á hverjum einasta degi. Það gerðist ekkert sérstakt, þannig að það þarf ekki að gera stórmál úr þessu.“
„Við erum að reyna að vera stöðugir og teljum það góða hugmynd, en við höfum líka spilað marga góða leiki með Cherki í liðinu. Þessi ákvörðun á bara við um þennan leik,“ sagði Maresca í dag.
Cherki hefur komið að ellefu mörkum í átján leikjum í öllum keppnum á tímabilinu og verður hans því sárt saknað gegn sterkasta liði deildarinnar.
Man City getur minnkað forskot Arsenal á toppnum niður í þrjú stig með sigri, en Arsenal getur að sama skapi náð enn meira forskoti á sína helstu keppinauta í titilbaráttunni.