Ísak Bergmann: Skil pirringinn en mér gæti ekki verið meira sama
„Þetta var erfiður leikur, Eistarnir gerðu þetta vel. Það er erfitt að brjóta niður lið, sérstaklega í landsliðsfótbolta. Maður sá það þegar Spánn mæti Grænhöfðaeyjum á HM í sumar,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson eftir 1-1 jafntefli Íslands gegn Eistlandi í C-deild Þjóðadeildarinnar fyrr í dag.
Íslenska þjóðin hefur látið vel í sér heyra á samfélagsmiðlum eftir leikinn og var Ísak spurður hvort að hann skilji pirring stuðningsmanna.