26.09.26 - 19:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Teitur: Öll færin þeirra koma eftir stór mistök
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stefán Teitur Þórðarson var til viðtals eftir jafntefli Íslands gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 1 Eistland
„Við vorum ekki nógu beittir og aggressívir. Við vorum hungraðir en það vantaði herslumuninn sérstaklega í seinni hálfleik sóknarlega," sagði Stefán Teitur.
„Þetta er þjóð sem við eigum að vinna á heimavelli. Það er ekki góð tilfinning eftir þennan leik."
„Þetta er áminning að við verðum að vera 110 prósent í hverjum einasta leik og keyra yfir liðin þegar það gefst tækifæri á því. Ekki hleypa þeim inn í leikinn eins og við gerðum í dag. Öll færin þeirra koma eftir stór mistök hjá okkur. Það eru þrír leikir eftir í þessum glugga, riðillinn er ekki að fara tapast á því að gera jafntefli heima," sagði Stefán Teitur.