Fotbolti.net
26.09.26 - 23:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jón Óli ósáttur með dómgæsluna - „Þær fengu aukaspyrnur þegar þær vildu"

Auglýsing
Jón Óli ósáttur með dómgæsluna - „Þær fengu aukaspyrnur þegar þær vildu"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
ÍBV tapaði gegn Breiðabliki í dag eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik. Fótbolti.net ræddi við Jón Ólaf Daníelsson, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Breiðablik
„Við mættum ekki út í seinni hálfleik. Þær völtuðu yfir okkur í seinni hálfleik og hefðu getað skorað sjö til átta mörk. Mér fannst tempóið okkar alltof lítið í fyrri hálfleik þó svo að við hefðum verið betri. Ég hefði viljað að við værum kröftugri og gengið frá leiknum," sagði Jón Óli.

„Auðvitað vill maður aðeins meira. Þegar maður spólar alveg til baka í febrúarmánuð. Við höfum verið einstaklega óheppnar í meiðslum, eitthvað sem maður spáði í af því maður slapp vel í fyrra. Þetta eru mikið lykilmenn sem hafa verið meiddar. Það er fyrst og fremst ástæða þess að við höfum ekki náð að hanga betur í þessum tveimur bestu liðum. Mikið hrós að vera í 3. sæti deildarinnar."

Jón Óli var ósáttur með dómgæsluna.

„Í síðasta leik fáum við tvær aukaspyrnur. Ég var búinn að vera tala um það á bekknum að það væri eins og við getum ekki fengið aukaspyrnur. Andstæðingurinn fær að brjóta í bakið á okkur og eftir síðasta leik ræddum við þjálfarateymið um það hvort lið væru farin að spila upp á þetta," sagði Jón Óli.

„Mér fannst við ekki vera fá aukaspyrnurnar í dag. Þær fengu aukaspyrnur þegar þær vildu. Sumir dagar eru svona."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.